Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Gagarín hannar sýningu fyrir stærsta sædýrasafn Norðurlandanna

28. september 2021

Hönnunarfyrirtækið Gagarín þróaði átta yfirgripsmiklar og fræðandi innsetningar á sýninguna ‘Once Upon a Sea’ á sædýrasafninu Bláa plánetan (Den Blå Planet) sem er eitt stærsta og metnaðarfyllsta sædýrasafn í Norður-Evrópu, staðsett í Kaupmannahöfn.

Sýningin gefur gestum innsýn í löngu horfna tíma áður en menn reikuðu um jörðina en þá iðaði hafið af fjölbreyttum furðuverum á öllum skala - skepnur sem líktust í engu þeim sjávardýrum sem við þekkjum í dag.

Höfin segja í raun mjög spennandi sögu um uppruna lífsins og tímann áður en forfeður okkar skriðu á land. Saga þeirra er ekki aðeins sagan okkar, heldur saga um róttækar breytingar á loftslagi og umhverfi um leið og hún er gagnagrunnur um tilvist tegundanna.

Gagarín þróaði átta yfirgripsmiklar og fræðandi innsetningar sem taka gestinn langt aftur í tímann, allt frá fyrsta lífsneistanum á jörðinni og þar til fyrstu verurnar skriðu upp á land. Auk innsetninganna var Gagarín ábyrgt fyrir allri grafískri hönnun og myndlýsingum á sýningunni.

Sem fjölbreytt sýning teiknast sögur sýningarinnar upp í spennandi og umhugsunarverðar gagnvirkar innsetningar um leið og þær miðla vísindalega traustum upplýsingum unnar af sérfræðingum.

Í gegnum alla sýninguna uppgötvar gesturinn furðulega og framandi hluti um leið og hann lærir um áhrif mannlegrar tilvistar á hafið. 

Gestir ljúka svo ferðalaginu með áheiti um aðgerðir til að hafa jákvæð áhrif á líffræðilega fjölbreytni hafsins. Þar leggja þeir sitt heit á að vernda hafið sem við ásamt forfeðrum okkar spruttum úr.  

Eins og í flestum verkum Gagarín var helsta áskorunin að miðla umfangsmiklum vísindalegum upplýsingum til gestanna á þann hátt að allir gætu notið óháð aldri eða stöðu. 
Önnur áskorun var að hanna og afhenda heila sýningu á tímum ferðatakmarkana þar sem enginn úr fyrirtækinu hafði kost á að fara á staðinn, hvort sem var til að greina hann í undirbúningnum eða taka út sýninguna að uppsetningu lokinni.
Að verki loknu kom okkur öllum á óvart hversu árangursríkt samstarfið var þar sem öll samskipti í gegnum ferlið fóru fram á fjarfundum því annar hittingur var ómögulegur á tímum covid

 Hringur Hafsteinsson, Creative director

Lestu nánar um sýninguna hér

Tengt efni

  • Göngu- og hjólavænt borgarumhverfi

  • Vekjum athygli á mikilvægi hönnunar og arkitektúrs fyrir samfélagið

  • Þetta er allt saman hannað

Dagsetning
28. september 2021
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Grafísk hönnun

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200