Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Gefur gömlum flíkum frá 66°Norður nýtt líf

29. ágúst 2019

Bergur Guðnason fatahönnuður hefur í samstarfi við 66°Norður þróað nýja línu þar sem hefðbundnar hettupeysur og fleira sem nú þegar er til hafa fengið nýtt líf.

Með þessu vill 66°Norður undirstrika að það þarf ekki alltaf að kaupa allt nýtt og það má almennt hugsa betur út í hvernig hægt er að breyta og endurnýta hluti, en gera þá samt spennandi. 

Bergur Guðnason útskrifaðist úr fatahönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2017 og hefur síðan þá m.a. unnið hjá Acne Studios í París.

„Fyrir þessa línu langaði mig til að gera þetta grafískt með mikið af litum. 66°Norður lógóið þekkja allir Íslendingar og langaði mig til þess að brjóta það aðeins upp og ögra lógóinu með því t.d. að taka tvær peysur og sameina þær þannig að þær passi samt ekki alveg saman. Í öðrum flíkum er sjálfri flíkinni ekki breytt en við lékum okkur með að sauma Kríuna á mismunandi staði,”segir Bergur í fréttatilkynningu frá 66°Norður.

Um takmarkað upplag er að ræða þar sem engar tvær flíkur eru eins en línan er öll unnin á saumastofu 66°Norður í Garðabænum. 

Verkefnið verður kynnt í verslun 66°Norður á Laugavegi milli 17-19 í dag.

Tengt efni

  • Verkefnið Misbrigði sýnir nýjan fatnað úr ósöluhæfum flíkum

  • Aníta Hirlekar — Nýir fletir

  • Hönnunarverðlaun Íslands 2019 - kallað eftir ábendingum!

Dagsetning
29. ágúst 2019

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Fatahönnun

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200