Hlaupið um arkitektúr á HönnunarMars
![](https://images.prismic.io/midstod-honnunar-og-arkitekturs/09c345b1-e104-424a-9471-cb17a666f0da_hlaup_1200x628+%282%29.png?auto=compress,format&rect=0,0,1200,628&w=1620&h=848)
Upplifðu Reykjavíkurborg á nýjan hátt í viðburði Arkitektafélags Íslands með örlítið örari hjartslátt en vanalega. Arkitektafélag Íslands býður nú í annað sinn upp á hlaupaviðburð á HönnunarMars. Hlaupið verður laugardaginn 6. maí og sunnudaginn 7. maí og hefst hlaupið kl. 11.00.
Hlaupið er alls um 7 km leið með nokkrum stoppum. Þó hlaupaformið þurfi ekki að vera upp á tíu er gott að hafa einhverja reynslu af hlaupi og geta hlaupið 7 km á 1 klst. Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta og upplifa borgina á örlítið nýjan hátt.