Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

HönnunarMars 2022 fer fram dagana 4. - 8. maí

7. júlí 2021

Við fögnum aftur mars í maí! Stærsta hönnunarhátíð landsins, HönnunarMars, breiðir úr sér um höfuðborgarsvæðið fyrstu helgina í maí 2022.

HönnunarMars, sem eins og nafnið gefur til kynna, hefur frá upphafi árið 2009 farið fram í marsmánuði en hið óvenjulega ár 2020 færði hátíðina fram í júní og nú í ár í maí. Sökum mikillar ánægju með tímasetningu hátíðarinnar nær sumri ákvað stjórn hátíðarinnar að árið 2022 færi hún fram fyrstu helgina í maí - og vonandi þá með hefðbundnari hætti en undanfarin tvö ár. 

Á HönnunarMars breiða sýningar og viðburðir úr sér um höfuðborgarsvæðið þar sem gestum gefst tækifæri til að versla íslenska hönnun sækja sér innblástur og kynnast grósku íslenska hönnunarsamfélagsins. Venju samkvæmt verða mun fjölbreytt dagskrá hátíðarinnar vera á Hafnartorgi, í Ásmundasal, Hörpu, Norræna húsinu, Grósku hugmyndhúsi, Elliðaárstöð, Gerðarsafni, Hönnunarsafni Íslands, Ráðhúsi Reykjavíkur og öðrum spennandi sýningarstöðum sem líta dagsins ljós þegar nær dregur.

Opnað verður fyrir umsóknir á hátíðina í haust en við mælum með því að taka dagana 4.- 8. maí 2022 frá fyrir HönnunarMars… í maí!

Ertu tilbúin að fagna aftur mars í maí?

–

Eftir: Einar Egils

Hátíðin leiðir saman framsækna hönnun og nýjungar við sýnendur og gesti. HönnunarMars boðar nýjungar og óvænta nálgun. Hátíðin er lífleg höfn hugmynda, ólíkra sjónarmiða og þekkingar, hreyfiafl sem auðgar og bætir samfélagið.

HönnunarMars er boðberi bjartsýni og skapandi krafta í samfélaginu. Þar gefst tækifæri til að beina sjónum að hönnun sem drifkraft til nýsköpunar og sýna hversu mikilvægu hlutverki þessar greinar gegna í samfélaginu.

HönnunarMars er ein af sex borgarhátíðum Reykjavíkur.

Fylgist með!

designmarch
designmarch
Heimasíða HönnunarMars

Tengt efni

  • Hlustaðu á HönnunarMars

  • Takk fyrir HönnunarMars í maí

  • HönnunarMars í maí settur á Hafnartorgi

Dagsetning
7. júlí 2021
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • HönnunarMars
  • Fagfélög

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200