Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Hönnunarsamkeppni Samtakanna ‘78 um tákn fyrir kynhlutlaus rými

22. janúar 2025

Samtökin ‘78 í samstarfi við Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og FÍT, Félag íslenskra teiknara, standa fyrir hönnunarsamkeppni um tákn fyrir kynhlutlaus rými, svo sem salerni, búningsklefa, sturtuaðstöðu o.fl. 

Verkefnið

Fimm ár eru liðin frá því að lög um kynrænt sjálfræði voru samþykkt og Ísland er fremst í flokki hvað varðar lög sem þessi. Hins vegar er vandað og skýrt tákn fyrir kynhlutlaus rými enn ekki til. Samtökin '78 fá margar fyrirspurnir frá fyrirtækjum og stofnunum varðandi táknnotkun, bæði hérlendis og erlendis frá. Væntingar standa því til að táknið hljóti athygli víða og komist í alþjóðlega dreifingu.

Markmið og áherslur

Markmiðið er að skapa sterkt tákn sem gengur fyrir öll kyn og hægt að nota hér á landi sem og alþjóðlega. Táknið þarf að vera skalanlegt og óháð ákveðinni efnisnotkun (málmur, timbur, steinn, prentun o.fl.). Hönnuðir eru hvattir til að hugsa út fyrir ráðandi kynjatvíhyggju í hönnun sinni.

Áherslur dómnefndar

  • Heildaryfirbragð
  • Styrkur hugmyndar
  • Hagnýting og raunhæfni 

Tímarammi 
2024

  • 19. nóvember// Samkeppni auglýst á alþjóðlega klósettdeginum

2025

  • 13. janúar // Lokað fyrir fyrri fyrirspurnir
  • 17. janúar // Fyrri fyrirspurnum svarað 
  • 3. febrúar // Lokað með seinni fyrirspurnir
  • 10. febrúar // Seinni fyrirspurnum svarað
  • 3. mars // Umsóknarfrestur rennur út
  • 3. apríl // Niðurstaða samkeppninnar kynnt á sýningu með innsendum tillögum á HönnunarMars 2025.

Dómnefnd

Fulltrúar Samtakanna’78

  • Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna ‘78
  • Reyn Alpha, formaður Trans Íslands  
  • Elías Rúni, grafískur hönnuður

Fulltrúar MH&A/FÍT

  • Hrefna Sigurðardóttir, grafískur hönnuður, lektor í LHÍ 
  • Hjalti Karlsson, grafískur hönnuður, Karlssonwilker NY

Verkefnastjóri og trúnarmaður

Gerður Jónsdóttir, Miðstöð hönnunar og arkitektúrs.

Úrslit og verðlaunafé

Niðurstaða samkeppninnar verður kynnt á HönnunarMars 2025. Veitt verða ein verðlaun að upphæð kr. 1.000.000.-

Skilaform og nafnleynd

Tákni skal skilað inn sem svarthvítu skjali í PDF-sniði í stærðinni A4 ásamt 50–200 orða texta um hugmyndina. Tillögum skal skila á netfangið samkeppni@honnunarmidstod.is 

Nafnleynd ríkir í samkeppninni. Upplýsingar um þátttakendur skulu eingöngu vera í tölvupósti en ekki í innsendum gögnum þ.e. á sjálfu pdf skjalinu. 

Tillögu er veitt viðtaka berist hún innan tilgreinds skilafrests og nafnleyndar sé gætt.

Fyrirspurnir

Tekið er við fyrirspurnum til og með 13. janúar á netfangið samkeppni@honnunarmidstod.is. Öllum fyrirspurnum verður svarað í síðasta lagi 17. janúar 2025. 

Skilmálar

Ef dómnefnd telur enga innsenda tillögu koma til greina til nánari útfærslu áskilur hún sér rétt til að hafna öllum tillögum.

Ef tveir eða fleiri keppendur senda inn samskonar útfærslu af verðlaunatillögu þá áskilur dómnefnd sér þann rétta að deila 1. verðlaunum með þeim aðilum. Niðurstaða dómnefndar er endanleg.

Samtökin ‘78, FÍT og Miðstöð hönnunar og arkitektúrs öðlast birtinga-og sýningarrétt á öllum innsendum tillögum og áskilja sér rétt að sýna opinberlega allar eða hluta af innsendum tillögum með nöfnum á höfundum þeirra. 

Með því að senda inn tillögu í samkeppnina ertu að samþykkja ofangreinda samkeppnislýsingu. 

Fyrirspurnir

  • Er þetta hugsað sem kynhlutlaust ,,as in'' fyrir öll kyn eða kynhlutlaust ,,as in non-binary''? (Semsagt eitt rými fyrir alla eða þrjú rými fyrir konur, karla og kvár?)

Svar: Táknið á að ganga fyrir öll kyn og á því að vera kynhlutlaust í þeim skilningi - þótt þetta sé augljóslega gert til þess að kynsegin fólk hafi rými þar sem þau eru velkomin.

  • Má senda eins margar tillögur og maður vill?

Svar : Já eins margar tillögur og hver vill en til að halda vel utan skráningu væri mjög gott ef hver og ein tillaga kæmi í sér pósti, þ.e. ekki 3 tillögur í einum pósti.

Tengt efni

  • HönnunarMars 2025 - umsóknarfrestur lýkur á miðnætti þann 17. nóvember.

  • Gísli B. Björnsson hlýtur heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands 2024

  • Við kynnum til leiks fyrsta fyrirlesara á DesignTalks 2025 - Tryggðu þér miða í forsölu!

Dagsetning
22. janúar 2025
Höfundur
Gerður Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Fagfélög

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200