Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Hönnunarsjóður og Icelandic Startups undirrita samstarfssamning

Um að er ræða samkomulag milli Hönnunarmiðstöðvar og Icelandic Startupsvegna samstarfs um ráðgjöf til styrkþega Hönnunarsjóðs og fulltrúa þeirra verkefna sem hljóta styrki úr sjóðnum. Hönnunarsjóður veitir um það bil 20 verkefnum styrk í tveimur úthlutunum eða samtals hljóta um 40 verkefni styrki á ári.

Markmið samstarfsins er að efla ráðgjöf við styrkþega sjóðsins í samræmi við markmið hans. Hönnunarmiðstöð heldur utan um umsýslu sjóðsins. Icelandic Startups og Hönnunarmiðstöð munu bjóða styrkþegum upp á ráðgjöf eftir úthlutun, um er að ræða vinnusmiðjur þar sem verður yfir mótun viðskiptahugmynda og fundi með mentorum. Icelandic Startups mun einnig vinna með Hönnunarmiðstöð að því að kortleggja og byggja upp tengslanet mentora með það fyrir augun að styrkja undirstöður þeirra verkefna sem fá úthlutað styrkjum úr Hönnunarsjóði.

Við erum mjög spennt fyrir þessu samstarfi og teljum að mikið tækifæri felist í því fyrir styrkþega Hönnunarsjóðs að fá ráðgjöf og aðstoð frá teymi Icelandic Startups sem hefur mikla þekkingu og reynslu í því að greiða leiðir nýskapandi fyrirtækja og frumkvöðla. Einnig er þetta mikilvægt skref í því að efla samstarf á milli Hönnunarmiðstöðvar Íslands og Icelandic Startups. Hönnun er lykilþáttur í nýsköpun, þróun sem getur haft afgerandi áhrif á samkeppnisstöðu fyrirtækja.

Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands

Það er mikil verðmætasköpun fólgin í því að tengja hönnun enn frekar við umhverfi nýsköpunar, viðskipta og tækni. Við sjáum fjölmarga snertifleti á frekara samstarfi við Hönnunarmiðstöð og er þetta einn liður á þeirri vegferð.

Salóme Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandic Startups.

Hlutverk Hönnunarsjóðs er að efla þekkingu og atvinnu- og verðmætasköpun á sviði hönnunar og arkitektúrs með fjárhagslegum stuðningi og ráðgjöf. Einnig að styrkja kynningar- og markaðsstarf erlendis sem stuðlar að útflutningi á íslenskri hönnun.

Sjóðurinn veitir þróunar- og rannsóknarstyrki, verkefnastyrki, markaðs- og kynningarstyrki, og ferðastyrki.

Nánari upplýsingar og dagsetningar Hönnunarsjóðs fyrir 2020 má finna á heimasíðu sjóðsins hér.

Tengt efni

  • Hönnunarsjóður
  • Handspritt úr matarafgöngum og lífræn verðlaun meðal verkefna sem hljóta styrki í aukaúthlutun Hönnunarsjóðs

  • Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu, stafrænar flíkur og vatnavellíðan meðal styrkþega Hönnunarsjóðs

Höfundur
Álfrún Pálsdóttir
Ljósmyndir
Víðir Björnsson

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Hönnunarsjóður
  • Icelandic start ups
  • Ráðgjöf

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200