Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Opið fyrir umsóknir í Hönnunarsjóð

9. desember 2024

Opið er fyrir umsóknir í Hönnunarsjóð. Um er að ræða fyrri úthlutun ársins 2025 en umsóknarfrestur rennur út þann 29. janúar 2025. Hægt er að sækja um þrjár tegundir styrkja auk ferðastyrkja. Úthlutun fer fram 4. mars 2025.

UMSÓKNARFRESTIR 2025

Almennir- & ferðastyrkir

12. nóvember 2024 – 29. janúar 2025 (á miðnætti)

Úthlutun 4. mars 2025

Almennir- & ferðastyrkir

6. mars 2025 – 17. september 2025 (á miðnætti)

Úthlutun 16. október 2025

Hönnunarsjóður veitir styrki til margvíslegra verkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs: þróunar og rannsókna, verkefna og markaðsstarfs auk ferðastyrkja.

Hlutverk Hönnunarsjóðs er að efla þekkingu, atvinnu- og verðmætasköpun á sviði hönnunar og arkitektúrs með fjárhagslegum stuðningi en sjóðurinn er fjármagnaður af stjórnvöldum.

Hönnunarsjóður stuðlar einnig að auknum útflutningi íslenskrar hönnunar með því að styrkja kynningar- og markaðsstarf erlendis.

Á síðasta ári hækkaði sjóðurinn upp í 80 milljónir og samhliða því varð sú breyting á að hámark styrkja hækkaði upp í 10 milljónir og ferðastyrkir upp í 150 þúsund hver.

Hönnunarsjóður veitir þrennskonar almenna styrki:

Þróunar- og rannsóknarstyrkir: Styrkir rannsóknir og þróun nýrra hugmynda eða lausna.

Verkefnastyrkir: Styrkir nýjar hugmyndir eða lausnir sem búið er að þróa og móta og eru komin á útfærslu- og framkvæmdastig.

Markaðs- og kynningarstyrkir: Styrkir verkefni sem komin eru af útfærslu- og framkvæmdastigi og eru fullmótuð og tilbúin til markaðssetningar.

Ferðastyrkir auka möguleika hönnuða og arkitekta á því að taka þátt í erlendum samstarfs- og kynningarverkefnum, sýningum, viðburðum, ráðstefnum eða viðskiptastefnumótum. Hægt er að sækja um ferðastyrk fyrir einn einstakling eða fleiri til sömu ferðar. Mælt er með því að umsækjendur ferðastyrkja vegna sama verkefnis/ferðar sæki um sem hópur en ekki hver fyrir sig.

Heimasíða Hönnunarsjóðs

Hér má nálgast frekari upplýsingar og umsóknareyðublöð.

Heimasíða Hönnunarsjóðs

Tengt efni

  • Öflugt ráðuneyti menningar og skapandi greina

  • Vöndum valið - veljum íslenska hönnun fyrir jólin

  • Opið kall / Leirnámskeið: “Out of Clay and Wood”. Náttúruleg efni í arkitektúr framtíðarinnar

Dagsetning
9. desember 2024
Höfundur
Guðrún Edda Einarsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200