Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Hönnunartengdir viðburðir í vikunni

16. desember 2024

Það styttist óðum í jólin og er nú fjórða helgi í aðventu framundan með fjölda viðburða fyrir öll. Hér er yfirlit yfir hönnunartengda viðburðadagskrá vikunnar. Góða skemmtun!

Lopedro X Húrra Reykjavík

Fyrsta lína Lopedro er lent í verslunum og af því tilefni verður boðið í jólafögnuð í Húrra á Hverfisgötu. Nánar hér um Lopedro

Hvenær: Mánudaginn 16. desember, kl. 18:00 - 20:00

Hvar: Húrra Reykjavík, Hverfisgötu

Minning í lit // Memory in Colour

Sýningaropnun í Nakano, Grensásavegi 16 - 2 hæð, Þriðjudaginn 17.des kl. 17:00-19:00

Verkin á sýningunni Minning í lit eftir Iona Sjöfn Huntingdon-Williams eru innblásin af minningum og hvernig þær endurspeglast og lifna við í gegnum upplifun á litum.

Á hverjum degi erum við umvafin óteljandi litum en í hinu daglega amstri tökum við oft ekki eftir þeim og fegurð þeirra. Þrátt fyrir það smeygja litirnir sér inn í hugann okkar og geta seinna meir vakið upp góðar minningar með tilheyrandi tilfinningum, á við gleði, bjartsýni og væntumþykju.

Hvenær: Þriðjudaginn 17. des, kl. 17:00 - 19:00

Hvar: Verslunin Nakano, Grensásvegi 16, 2. hæð.

Viðburður á Facebook

Sweet Salone pop-up

Hinn árlegi jólamarkaður Aurora Velgerðasjóðs verður opin fram yfir áramót, blásið hefur verið til pop-up verslunar á Mýrargötu 41, 101 Reykjavik. Þar er hægt að næla sér í valdar vörur frá Sweet Salone. Vörurnar eru hannaðar af íslenskum hönnuðum en búnar til af hæfileikaríku handverksfólki í Sierra Leone.

Opnunartími: Miðvikud. - Laugard, frá kl. 11:00 - 16:00

Staðsetning: Mýrargata 41

Viðburður á Facebook

Erindrekar x Hakk gallerí

Nýstofnað Hakk gallerí þróar og heldur sýningar auk viðburða á verkum og verkefnum íslenskra jafnt sem erlendra hönnuða og listamanna. Þann 12. desember síðastliðinn opnaði HAKK, hönnunargallerí dyrnar að Óðinsgötu 1 í Reykjavík. Á fyrstu opnun HAKK steig hönnunartríóið Erindrekar á stokk með fylgihluti úr æðardúni frá Skálanesi í Seyðisfirði. Um er að ræða lúffur og húfur, úr fyrsta flokks vottuðum æðardúni og vatns- og vindheldri, lífrænni, bómull. Vörurnar eru handgerðar á Íslandi og seldar í takmörkuðu upplagi.

Nú er tilvalið að gefa dúnmjúka íslenska hönnun úr íslensku hráefni í jólagjöf sem hlýjar um hjartarætur.

Opnunartímar í desember:
13. - 22. desember kl. 12:00 - 22:00
23. Desember kl. 12:00 - 23:00

Hvar: Hakk gallerí, Óðinsgötu 1

Vetrar Vondaland, pop-up búð

Popp up búðin VETRAR VONDALAND verður opin fram að jólum. Hugleikur Dags, Lóa Hjálmtýs, Þrándur Þórarins og Havarí selja list og föt og spil og dagatöl og bolla og allskonar! Þú færð jólagjafirnar hjá okkur.

Staðsetning: Gallery Hafnartorgi

Lady Brewery x Hafnarhús

Alla fimmtudaga í vetur verður Lady Brewery með pop-up bar á annari hæð í Hafnarhúsinu.

Boðið er upp á bjór og óáfenga drykki ásamt spennandi pikkluðum smáréttum.

Happy Hour milli kl. 17–20.00 og sérstakur afsláttur fyrir árskortshafa Listasafns Reykjavíkur.

Tilvalið tækifæri til að hittast & kíkja á sýningar safnsins og upppákomur.

Hvenær: Happy Hour milli kl. 17:00 – 20.00

Staðsetning: Hafnarhúsið

Bókin Gullsmíði í 100 ár og jólastemning í PRAKT

Verið velkomin til okkar í jólastemmingu í Prakt á laugardaginn.

Halla Bogadóttir gullsmiður mun kynna bókina Gullsmíði í 100 ár sem Félag íslenskra gullsmiða gaf út nú í haust í tilefni af 100 ára afmæli félagsins. Bókina prýða 100 ljósmyndir Írisar Stefánsdóttur ljósmyndara af smíðisgripum eftir 80 íslenska gullsmiði og er kjörin jólagjöf fyrir unnendur íslensk handverks.

Það verða léttar veitingar í boði, jólatilboð á bókinni og 20% afsláttur af öllum silfurskartgripum meðan á kynningu stendur.

Hvenær: Laugardaginn 21. des, kl. 15:00 - 17:00

Hvar: PRAKT skartgripaverslun, Laugavegur 82

Viðburður á Facebook
Dagsetning
16. desember 2024
Höfundur
Guðrún Edda Einarsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200