Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Hraunmyndanir framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr 2025

6. september 2024

Verkefni s.ap arkitekta, Hraunmyndanir hefur verið valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr 2025. Alls bárust tólf tillögur að sýningu í opnu kalli sem auglýst var í lok apríl af Miðstöð hönnunar og arkitektúrs. Fjórar tillögur voru valdar til frekari kynninga fyrir stýrihóp verkefnisins sem sá um að valið. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt í Feneyjatvíæringnum í arkitektúr með opnu kalli.

Í verkefninu Hraunmyndanir (e. Lavaforming) er sögð saga framtíðarsamfélags sem þróar framsæknar lausnir í mannvirkjagerð. Hraunrennsli er beislað, nýtt sem byggingarefni og tekst með því að umbreyta staðbundinni ógn í auðlind. 

 „Á tímum Snorra Sturlusonar, þegar síðast gaus á Reykjanesi var eldgos framandi viðburður. Í okkar sögu árið 2150 höfum við beislað hraunrennslið líkt og við gerðum með gufuaflið á 20. öld. Við vörðum söguna með atburðum sem höfðu áhrif á þróun og tækni en markmið hennar er að sýna að arkitektúr getur verið krafturinn sem endurhugsar og mótar nýja framtíð. Hraunflæði getur innihaldið nóg byggingarefni fyrir grunnstoðir heillrar borgar sem rís á nokkrum vikum án skaðlegrar námuvinnslu og óendurnýtanlegrar orkuöflunar.“
Arnhildur Pálmadóttir, arkitekt, stofnandi og listrænn stjórnandi Hraunmyndana

Arkitektastofan s.ap arkitektar er þverfagleg rannsóknarstofa með áherslu á tilgátuverkefni framtíðarinnar. Arnhildur Pálmadóttir er stofnandi og annar eigandi s.ap arkitekta sem sérhæfir sig í sjálfbærni og hringrás í byggingariðnaði ásamt því að vera listrænn stjórnandi Hraunmyndana. Hún er þekkt fyrir að nálgast verkefni með hugarfari frumkvöðuls og þverfaglegri nálgun. Arnhildur hefur skrifað greinar og texta sem tengjast arkitektúr, nýsköpun, tækni og sjálfbærni í hönnun og mannvirkjagerð auk þess að halda fyrirlestra um efnið. 

Arnhildur er einn af eigendum dansk-íslenska arkitekta- og nýsköpunarfyrirtækisins Lendager, sem sérhæfir sig í sjálfbærni og hringrás í mannvirkjagerð. Arnhildur er tilnefnd til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2024 fyrir þverfaglega nálgun í sinni vinnu og áherslu á endurvinnslu byggingarefnis.

Arnhildur mun ásamt teymi s.ap arkitekta og hóp sérfræðinga og þverfaglegra samstarfsaðila sýna Hraunmyndanir (e.Lavaforming) í Feneyjum 2025 fyrir Íslands hönd.  

Arnhildur Pálmadóttir, arkitekt

Rökstuðningur stýrihóps:
„Sýningartillagan Lavaforming er áræðin og ögrandi. Hún hefur alla burði til þess að vekja athygli á sérstöðu Íslands og hlutverki og mikilvægi arkitektúrs á tímum óvissu og áskorana með eftirminnilegum hætti. Sýningin miðlar sögu, samtíð og framtíð lands í stöðugri mótun – og hugkvæmni fólks sem sífellt þarf að aðlaga sig krefjandi aðstæðum. Hugmyndin skapar umræðu um mikilvægi nýsköpunarviljans og ímyndunaraflsins fyrir þróun samfélaga og virði þess að vísindi og listi vinni saman.“

Leitað var að sterkri og áræðinni hugmynd að sýningu sem veitir innblástur, vekur áhorfendur til umhugsunar en er um leið raunhæf og framkvæmanleg.

Miðstöð hönnunar og arkitektúr þakkar öllum umsækjendum fyrir faglega vinnu og framúrskarandi tillögur. Vinna teymis við útfærslu og framkvæmd er hafin og á næstu mánuðum munu birtast frekari upplýsingar þar sem hægt verður að fylgjast með framvindu og þróun verkefnisins.  

Feneyjatvíæringurinn í arkitektúr fer fram í 19. sinn dagana 10. maí - 23. nóvember 2025, með foropnun 8. - 9. maí.Tvíæringurinn gegnir lykilhlutverki við að móta og dýpka umræðu um arkitektúr um allan heim og þar koma saman lykilaðilar sem vinna að lausnum á brýnustu áskorunum samtímans – hvernig við byggjum og þróum samfélög á sjálfbæran hátt. Yfirskrift tvíæringsins 2025 er Intelligens. Natural. Artificial. Collective  og með sýningarstjórn fer arkitektinn og verkfræðingurinn Carlo Ratti. 

Stýrihópur Feneyjatvíærings í arkitektúrs 2025:

  • Halla Helgadóttir framkvæmdastjóri og formaður stýrihóps fyrir hönd Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs
  • Massimo Santanicchia, arkitekt, prófessor og deildarforseti í arkitektúr við LHÍ fyrir hönd Listaháskóla Íslands, 
  • Magnea Guðmundsdóttir, arkitekt, Teiknistofan Stika fyrir hönd Arkitektafélags Íslands, 
  • Daníel Jakobsson, landslagsarkitekt, Landslag fyrir hönd Félags íslenskra landslagsarkitekta, 
  • Silja Ósk Leifsdóttir, innanhússarkitekt, Nordic Office of Architecture fyrir hönd Félags húsgagna- og innanhússarkitekta, 
  • Sigurður Einarsson, arkitekt og hönnunarstjóri, Batteríið fyrir hönd SAMARK.
  • Kristjana Rós Guðjohnsen, fagstjóri lista og skapandi greina fyrir hönd Íslandsstofu, 
  • Kristrún Heiða Hauksdóttir, sérfræðingur fyrir hönd menningar- og viðskiptaráðuneytis. 

Tengt efni

  • HA? Kíkjum á það sem er að gerast

  • And Anti Matter tekur þátt í Design Market á Helsinki Design Week

  • Erum við að leita að þér? Kynningarstjóri Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs

Dagsetning
6. september 2024
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir
Ljósmyndir
Aldís Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Arkitektúr
  • Feneyjartvíæringur

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200