Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Opið kall - hugmynd að sýningu Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr 2025

23. apríl 2024
Arsenale, Feneyjar.

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs kallar eftir tillögum að sýningu Íslands fyrir 19. alþjóðlega tvíæringinn í arkitektúr í Feneyjum, sem mun standa yfir frá 24. maí til 23. nóvember 2025. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt með opnu kalli. 

Leitað er að sterkri og áræðinni hugmynd að sýningu sem veitir innblástur, vekur áhorfendur til umhugsunar en er um leið raunhæf og framkvæmanleg.

Sýningunni er ætlað að fanga erindi og viðfangsefni íslensks arkitektúrs og samspil hans við alþjóðlega strauma og umræðu, og bera vitni um hugvit og sköpun í hinu byggða umhverfi sem nýst getur til að mæta áskorunum samtímans. Mennta- og menningarmálaráðuneyti Íslands hefur falið Miðstöð hönnunar og arkitektúrs umsjón með framkvæmd verkefnisins. 

Umsóknarferlið er tveggja þrepa

Í fyrra þrepi er óskað eftir skýrri hugmynd ásamt einfaldri myndrænni framsetningu. 

Í seinna þrepi kynna þrjú til fjögur teymi hugmynd sína fyrir stýrihóp sem velur eina.

Opið kall 

Frá 23. apríl – 24. maí 2024 er opið fyrir innsendingar á hugmyndum til valnefndar.

Útfærsla tillagna og kynningar 

Valnefnd mun tilnefna 3-4 teymi til að útfæra sínar hugmyndir nánar. 

Kynning þeirra fyrir valnefnd fer fram á bilinu 18. –19. júní. 

Að loknum kynningum verður eitt teymi valið og ráðið til verkefnisins og við tekur vinna við undirbúning og framkvæmd sýningarinnar í Feneyjum. 
Umsækjendur geta sent fyrirspurnir um atriði sem varða opið kall og valferlið til og með 6. maí 2024 gegnum netfangið tviaeringur@honnunarmidstod.is. Fyrirspurnir og svör við þeim verða birt á vef Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs þann 10. maí.

UMSÓKNARFERLIÐ

Leiðbeiningar fyrir umsækjendur
Fyrirspurnir og svör
Umsóknareyðublað

Tengt efni

  • Ísland taki þátt í Feneyjatvíæringnum í arkitektúr

  • Ísland tekur þátt í Feneyjartvíæringnum í arkitektúr 2025

Dagsetning
23. apríl 2024
Höfundur
Gerður Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Arkitektúr
  • Landslagsarkitektúr
  • Innanhússarkitektúr
  • Feneyjartvíæringur

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200