Byggjum grænni framtíð: Taktu þátt í opnum vinnustofum
Húsnæðis-og mannvirkjastofnun heldur fimm opnar vinnustofur á vegum verkefnisins Byggjum grænni framtíð nú í mars. Til umræðu á vinnustofunum verða aðgerðir sem eiga að efla vistvæna mannvirkjagerð næstu 10 árin.
Vinnustofurnar munu fjalla um skipulag og hönnun vistvænni mannvirkja, vistvæn byggingarefni, orkuskipti á vinnuvélum, nýtingartíma mannvirkja og hringrásarhagkerfi mannvirkjageirans. Allir hagaðilar húsnæðis- og mannvirkjageirans eru hvattir til að taka virkan þátt í vinnustofunum og koma á framfæri sínum sjónarmiðum og þekkingu til verkefnisins.
Skráning á vinnustofurnar fer fram hér.
Byggjum grænni framtíð er samstarfsverkefni stjórnvalda og atvinnulífsins, sem byggir á aðgerð C.3 í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Á vegum verkefnisins starfa sex hópar sem skipaðir eru rúmlega 30 sérfræðingum víðsvegar úr virðiskeðju byggingargeirans.
Nánari upplýsingar um verkefnið má nálgast á byggjumgraenniframtid.is.