Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Híbýlaauður - Samtal um húsnæðismál á mannamáli

6. maí 2021

Þriðjudaginn 11. maí milli kl. 13-15 verður beint streymi á málstofu um húsnæðismál, spunnið út frá arkitektónískum og hagrænum rannsóknum sem kynntar verða í samhengi við húsnæðisuppbyggingu á Íslandi. Í samtalinu er áherslunni beint að íbúanum og gæðum í hönnun og skipulagi, því að skapa híbýlaauð fyrir þá sem búa ekki síður en þá sem byggja. 


Fyrir hvern er verið að byggja?
Magn, framboð og fermetrar eru fyrirferðarmiklir þættir í umræðu um húsnæðismál. Spurt er hversu mikið á að byggja en ekki hvernig á að byggja. Fátt er hins vegar mikilvægara fyrir líf okkar og lífsgæði en það hvernig við búum og hvernig húsnæði og umhverfið í kringum okkur er skipulagt og hannað. 

Gæði fyrir alla eða útvalda?
Lýðheilsu- og umhverfisáskoranir samtímans kalla sem aldrei fyrr á gæði hönnunar við íbúðauppbyggingu. Birta, rýmisgerð, sól og skjól eru meðal mikilvægra áhrifaþátta á líðan og daglegt líf, almannagæði, sem koma til kastanna við uppbyggingu íbúða og þéttingu byggðar. Til að efla almannagæði samfara húsnæðis-uppbyggingu er mikilvægt að beina sjónarhorninu að íbúanum, líðan hans og upplifun í daglegu lífi. Að huga að listinni að búa samfara listinni að byggja og skapa híbýlaauð fyrir þá sem búa, ekki síður en þá sem byggja.

Verkefnið HÍBÝLAAUÐUR hefur að markmiði að miðla þverfaglegum rannsóknum, þar sem áherslan er á gæði húsnæðis, áhrifamáttinn og auðlegðina sem í þeim felast. Með vísan í ný og nýleg dæmi er skyggnst bakvið þróun í húsnæðismálum á Íslandi í alþjóðlegu samhengi og sögulegri vídd. Markmiðið er að brýna þekkingu fag- og fræðafólks á sviði hönnunar og arkitektúrs í samtali við aðrar faggreinar og framkvæmdaaðila, til áhrifa á sviði húsnæðismála. Viðburðurinn í Norræna húsinu er hluti stærra viðburða- og útgáfuverkefnis á vegum ÚRBANISTAN og arkitektanna Önnu Maríu Bogadóttur, Hildar Gunnarsdóttur, Hólmfríðar Ósmann Jónsdóttur og Hrefnu Bjargar Þorsteinsdóttir, Ásgeirs Brynjars Torfasonar, doktors í fjármálum og Snæfríðar Þorsteins, hönnuðar. Verkefnið hefur hlotið styrk úr Hönnunarsjóði og Miðstöð íslenskra bókmennta.

DAGSKRÁ ÞRI. 11. MAÍ KL. 13-15

13.00 LÚXUS FYRIR ALLA?
ANNA MARÍA BOGADÓTTIR, arkitekt og menningarfræðingur
innleiðir samtalið um listina að búa og listina að byggja:
Hvar er pláss til að anda?

13.15 HVER GRÆÐIR Á ÞESSU?
ÁSGEIR BRYNJAR TORFASON, doktor í fjármálum
rýnir í hagræna og hagsögulega þætti íbúðauppbyggingar í samtali við hagfræðing:
Er dýrt að byggja ódýrt? 

14.40 GLÆTAN?!
HREFNA BJÖRG ÞORSTEINSDÓTTIR & HÓLMFRÍÐUR ÓSMANN JÓNSDÓTTIR, arkitektar
kynna rannsóknir sínar á dagsbirtu í fjölbýlishúsum  ásamt ÁSTU LOGADÓTTUR doktor í rafmagnsverkfræði:
Er gluggi ekki bara gluggi?

14.05 HVAR Á PÍANÓIÐ AÐ VERA?
HILDUR GUNNARSDÓTTIR, ARKITEKT
rýnir í rýmismótun, stærð og gæði almennra íbúða í samtali við Björn Arnar Magnússon framkvæmdastjóra Brynju, hússjóðs Öryrkjabandalags Íslands og Pál Gunnlaugsson arkitekt og meðeiganda ASK arkitekta:
Hvenær runnu leiksvæðið og bílastæðið saman í eitt?


14.30 ER EINHVER FRAMTÍÐ Í ÞESSU?
Fulltrúar úr framlínu húsnæðisuppbyggingar, þeirra sem búa og byggja, leggja orð í belg:
Á að splæsa í gæði fyrir alla?

Viðburðurinn er á dagskrá Hönnunarmars og í samstarfi við Norræna húsið.

Híbýlaauður - Viðburður á facebook

Smelltu hér

Híbýlaauður - Viðburður á facebook

Hlekkur á streymi

Smelltu hér

Hlekkur á streymi

Hýbýlaauður

Smelltu hér

Hýbýlaauður
Dagsetning
6. maí 2021
Höfundur
Gerður Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Arkitektúr
  • HönnunarMars

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200