Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Innblástur og framfarir - málþing um rannsóknir á skapandi greinum

1. mars 2024
HönnunarMars 2023. Ljósmynd: Aldís Páls

Rannsóknasetur skapandi greina, sem stofnað var síðastliðið sumar, efnir nú til síns fyrsta málþings mánudaginn 4. mars í Mengi. Á málþinginu verður fjallað um fyrirliggjandi rannsóknir á menningu og skapandi greinum og þörf á frekari rannsóknum og greiningum.

Rannsóknir á atvinnulífi menningar og skapandi greina skortir tilfinnanlega í dag en þær eru forsenda fyrir uppbyggingu atvinnuvegarins og skilningi stjórnvalda og hagsmunaaðila á einkennum, tækifærum og áskorunum.

Markmið Rannsóknaseturs skapandi greina er meðal annars að efla og bæta rannsóknir og vera leiðandi í mótun nýrra rannsóknaverkefna, í samvinnu háskóla innanlands sem utan. Með málþinginu gefst tækifæri til að vekja athygli á þeim rannsakendum sem láta sig svið menningar og skapandi greina varða og efla samtal þeirra á milli. 

Málþingið verður opnað af forsætisráðherra og lokað af menningar- og viðskiptaráðherra. Sigurlína Valgerður Ingvarsdóttir fjárfestir og Bragi Valdimar Skúlason markaðs- og tónlistarmaður flytja tendrun og rannsakendur og sérfræðingar flytja erindi um rannsóknir á sviði menningar og skapandi greina.

Þau sem kynna rannsóknir sínar eru: Kristín Valsdóttir Listaháskóla Íslands, Kjartan Sigurðsson Háskólanum á Akureyri, Katrín Anna Lund, Háskóla Íslands, Sigrún Lilja Einarsdóttir Háskólanum á Bifröst, Áskell Heiðar Ásgeirsson Háskólanum á Hólum, Þórey Þórisdóttir Háskóla Íslands, Rán Tryggvadóttir og Ágúst Ólafur Ágústsson sérfræðingar. Þá flytur Erla Rún Guðmundsdóttir, sem veitir RSG forstöðu, erindi um lykiltölur menningar og skapandi greina og starfsemi rannsóknasetursins.

Anna Hildur Hildibrandsdóttir formaður stjórnar Rannsóknaseturs skapandi greina verður málþingsstjóri.  

Málþingið fer fram mánudaginn 4. Mars í Mengi, Óðinsgötu 2, kl. 13:00-16:00. Einnig verður unnt að fylgjast með þinginu í beinu streymi. Þátttakendur eru beðnir um að skrá sig og jafnframt að tilgreina hvort þeir ætli að mæta á staðinn eða á streymi.
Skráning fer fram hér og þar er einnig að finna dagskrá málþingsins og hlekk fyrir streymi.

Viðburður á Facebook

Viðburður á Facebook

Tengt efni

  • And Anti Matter í KIOSK

  • AS WE GROW hanna mottumarssokka ársins

  • James Merry á DesignTalks 2024

Dagsetning
1. mars 2024
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Fagfélög

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200