Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Innflutningsboð og opnun í Hönnunarsafni Íslands

19. janúar 2023

Keramikhönnuðurinn Ada Stańczak heldur innflutningsboð á morgun, föstudaginn 20. janúar kl. 18 fyrir vinnustofudvöl í Hönnunasafni Íslands. Á sama tíma opnar sýningin Fallegustu bækur í heimi sem haldin er í samstarfi við FÍT, félag íslenskra teiknara.

Ada Stańczak er keramikhönnuður og rannsakandi sem býr og starfar í Reykjavík. Hún lauk námi í menningarfræðum frá Háskólanum í Varsjá og keramiknámi frá Myndlistarskólanum í Reykjavík. Hún flutti til Íslands fyrir fimm árum og við það kviknaði áhugi hennar á því að rannsaka hvernig íslenskur efniviður eins og leir, jarðvegur, hraun og steinar geta haft áhrif á það að tilheyra ákveðnum stað eða landi. 

Á meðan á dvölinni stendur mun Ada rannsaka möguleika jarðefnanna sem litarefni fyrir keramik. Gestir geta fylgst með tilraunum, vöruþróun og gerð verka frá upphafi að fullgerðri vöru. Einnig geta gestir verslað beint frá hönnuðinum.

Ada mun standa fyrir námskeiðum og vinnusmiðjum á meðan á dvölinni stendur. Upplýsingar verða settar á heimasíðu safnsins og samfélagsmiðla. Hér er viðburðurinn á Facebook.

Fallegustu bækur í heimi

Best Book Design from all over the World keppnin hefur verið haldin frá árinu 1963 með það að markmiði að hvetja til aukins alþjóðlegs samtals um bókahönnun. Að þessu sinni bárust inn bækur frá 30 löndum. Fjórtán bækur voru verðlaunaðar og sýningin samanstendur af þessum bókum. Í ár var það bókin On the Necessity of Gardening. An ABC of Art, Botany and Cultivation sem hlaut aðalverðlaunin en hún kemur frá Hollandi og er hönnuð af Bart de Baets.

Sýningin er haldin í samstarfi við FÍT, félag íslenskra teiknara.

Tengt efni

  • Aðalfundur Arkitektafélags Íslands verður haldinn þriðjudaginn 28. febrúar

  • Aðgerðir í átt að sjálfbærari tískuiðnaði ræddar á fyrstu ráðstefnu Samtaka evrópskra fatahönnunarfélaga

  • Hönnunarsjóður hækkar í 80 milljónir

Dagsetning
19. janúar 2023
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Leirlist
  • Grafísk hönnun
  • Hönnunarsafn Íslands

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200