Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Íslensk verkefni á heimsmælikvarða keppa fyrir Íslands hönd í verðlaunum Art Directors Club Europe (ADC*E)

25. október 2019
Íslensku dómnefndarfulltrúarnir f.v Rósa Hrund Kristjánsdóttir, hönnunarstjóri á Hvíta húsinu, Guðmundur Bjarni Sigurðsson eigandi Kosmos og Kaos og Alexandra Buhl grafískur hönnuður hjá Forlaginu

Verðlaun Art Directors Club Europe (ADC*E) verða veitt í 29. sinn í Barcelona í byrjun nóvember næstkomandi.


Félag íslenskra teiknara er aðili að ADC*E og heldur utan um þátttöku Íslands í keppninni, auk þess að standa fyrir FÍT keppninni  ár hvert. Verðlaunin endurspegla allt það besta í grafískri hönnun á hverjum tíma en verðlaunaverk hvers lands eru send í keppnina sem eru svo dæmd af 60 fagaðilum alls staðar að úr Evrópu.

Kristín Eva Ólafsdóttir er formaður FÍT og á sæti í stjórn ADC*E en hún er jafnframt fyrsta konan frá stofnun félagsins 1953 til að gegna því embætti. Að hennar sögn hefur verið lögð mikil áhersla undanfarið ár hjá FÍT að kynna félagsmenn og fjölbreytileika fagsins sem spannar vítt svið.

Velgengni íslenskra hönnuða á erlendri grundu fyrr á árinu sannar að þeir eiga fullt erindi í keppni sem þessa en þrenn íslensk verkefni úr FÍT keppninni 2019 hafa sópað til sín tilnefningum og verðlaunum erlendis það sem af er ári;UN Women „Kynbundið ofbeldi er nær en þú heldur“ hlaut meðal annars gullverðlaun Clio og tilnefningu á Cannes Lions verðlaunahátíðinni, mörkun Þjóðminjasafns Íslands hlaut tvær tilnefningar til D&AD verðlaunanna í Bretlandi, auk tilnefningar til „The One Show“ verðlaunanna og Hönnunarverðlauna Íslands 2019.Að endingu hefurgestastofa þjóðgarðsins á Þingvöllumhlotið tvenn Ret Dot verðlaun 2019 sem er einstaklega mikill heiður.

Íslendingar eiga þrjá dómnefndarfulltrúa í keppninni en þau eru Alexandra Buhl grafískur hönnuður hjá Forlaginu, Guðmundur Bjarni Sigurðsson eigandi Kosmos og Kaos og Rósa Hrund Kristjánsdóttir, hönnunarstjóri á Hvíta húsinu. Þau hafa margra ára reynslu í faginu og munu öll miðla þessari reynslu sem yfirdómarar í FÍT 2020 keppninni á Íslandi.

Það er einstakt tækifæri fyrir íslenska hönnuði að fá að sitja í dómnefnd sem þessum, það stækkar ekki bara tengslanetið og skapar tækifæri, það er einnig mikilvægt að fá að taka þátt í rökstuddum umræðum um fagið og skoða allt það besta frá hverju landi fyrir sig sem gefur mikinn innblástur. Þessa reynslu nær svo hingað heim í næstu FÍT keppni sem gerir keppnina faglegri.

Meðal verkefna sem voru verðlaunuð á FÍT 2019 og keppa fyrir Íslands hönd eru:

•    Nýtt einkenni Þjóðminjasafns Íslands sem hlaut aðalverðlaun FÍT 2019 

    •    Kynbundið ofbeldi er nær en þú heldur fyrir UN Woman Íslands í flokknum auglýsingaherferðir.

    •    Sextíu kíló af sólskini fyrir Hallgrím Helgason í flokknum bókakápur.

    •    Þjóðgarðurinn á Þingvöllum í flokknum gagnvirk miðlun og upplýsingahönnun. 

    •    Útmeða fyrir Geðhjálp í flokknum myndlýsingar fyrir auglýsingar og herferðir. 

    •    Vesturbyggð í flokknum mörkun fyrirtækja. 

    •    Flóra Íslands í flokkum bókahönnun.



Hér má sjá dæmi frá verkefnunum:

Gestastofa Þjóðgarðsins á Þingvöllum.
Endurmörkun Þjóðminjasafns Íslands, sem einnig er tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands.
Sextíu kíló af sólskini eftir Hallgrím Helgason, eftir Studiostudio
Kynbundið ofbeldi er nær en þú heldur fyrir UN Woman Íslands í flokknum auglýsingaherferðir.
Vesturbyggð í flokknum mörkun fyrirtækja.

Tengt efni

  • Félagið
  • Heiðursfélagar
  • ADC*E
Dagsetning
25. október 2019

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • FÍT
  • Fagfélög

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200