Jes Einar Þorsteinsson arkitekt

Laugardaginn 14. nóvember kl. 16:00 opnar sýning í Hönnunarsafni Íslands um Jes Einar Þorsteinsson arkitekt (1934-2024).
Jes Einar nam myndlist við Académie de la Grande Chaumière og arkitektúr við École nationale supérieure des Beaux-Arts í París á árunum 1954–1967. Eftir heimkomu hóf hann rekstur teiknistofu í eigin nafni og hannaði fjölda bygginga, flestar á sviði íþrótta og heilsugæslu. Meðal þekktari verka hans eru Skeiðalaug í Brautarholti og heilsugæslan og tónlistarskólinn á Seltjarnarnesi.
Eftir blómaskeið módernismans um miðja 20. öld þróuðust nýjar stefnur í arkitektúr sem byggðu ýmist á hugmyndum módernismans eða tóku afstöðu gegn þeim. Póstmódernismi ruddi sér til rúms sem skýrt andsvar við módernismanum á meðan brútalismi þróaðist innan hans og náði hámarki á sjöunda og áttunda áratugnum. Brútalismi einkennist af notkun byggingarefna í sinni náttúrulegu mynd, oftar en ekki ómeðhöndlaðrar steinsteypu, ásamt massífum formum og endurtekningu þeirra. Nafn stefnunnar má rekja til franska hugtaksins béton brut sem þýðir hrá steypa á íslensku.
Í verkum Jes Einars eru greinileg brútalísk áhrif. Notkun hans á hrárri steypu má rekja til námsáranna í Frakklandi og áhuga hans á Le Corbusier, sem hann nefndi meðal sinna eftirlætisarkitekta í viðtali árið 2018, ásamt Tadao Ando og Steven Holl.
Sérstaða Jes Einars birtist meðal annars í nálgun hans á mótun rýmis. Ólíkt mörgum samtíma arkitektum sem unnu í anda módernismans þar sem hið frjálsa plan með sýnilegu burðarvirki var algengt, hafði Jes Einar frekar sjálfa rýmismótunina að leiðarljósi. Burðarvirkið fylgdi á eftir. Með slíkri nálgun brotnar útlit húsanna upp og opnanir myndast á óvæntum stöðum.
Á sýningunni eru tekin fyrir sjö ólík verkefni sem endurspegla helstu höfundareinkenni arkitektsins.
Sýningarstjórar eru Haukur Hafliði Nínuson og Katrín Heiðar
Hönnunarsafn Íslands stendur fyrir leiðsögn í húsi Jes Einars við Grjótasel 19 sunnudaginn 15. nóvember kl. 13:00 og 14:00. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á tix.is.
Sýningin stendur til 7. febrúar 2026
Hönnunarsafn Íslands við Garðatorg er opið alla daga frá 12-17 nema mánudaga