Knauf kynning fyrir hönnuði og arkitekta

Þér er boðið á kynningu 11. nóvember frá 13:00-15:00 í höfuðstöðvum BYKO.
Komdu á kynningu hjá sérfræðingum frá Knauf þar sem meðal annars verður farið yfir Knauf Blue trefjastyrktu gipsplöturnar, FireWin eldvarnarkerfið og anhydrid flotefni.
Farið verður yfir helstu eiginleika og notkunarmöguleika, góð ráð við uppsetningu og spurningum gesta svarað.
📍 Höfuðstöðvar BYKO, Skemmuvegi 2a (matsalur á 5. hæð)
🗓️ 11. nóvember, kl. 13:00-15:00
🍢 Léttar veitingar verða í boði