Komdu á hönnunartrúnó

Á HönnunarMars stóð Hvíta húsið fyrir hönnunartrúnói á Gilligogg þar sem reynsluboltar úr heimi auglýsinga, hönnunar og samfélags ræddu um samspil auglýsingahönnunar og samfélagsbreytinga, tímamót sem hafa haft veruleg áhrif á lífshætti bæði atvinnulíf og samfélag.
Nú er hægt að kafa dýpra ofan í umræðurnar á vef Hvíta hússins. Þar má horfa á upptökur og hlusta á samtölin sem fjalla meðal annars um áhrif gervigreindar á auglýsingageirann, lærdóma hrunsins, áhrif COVID-faraldursins, kvennafríið og hvernig eldgosið í Eyjafjallajökli hafði áhrif á ímynd Íslands.
Þótt umræðurnar hafi upphaflega farið fram í trúnaði er nú öllum boðið að leggja við hlustir og spegla sig í fortíð, samtíð og framtíð hönnunar og auglýsinga.
Hér fyrir neðan má nálgast allt efnið.