Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Konur sem kjósa tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2021

8. október 2021

Konur sem kjósa eftir Snæfríði Þorsteins, Hildigunni Gunnarsdóttur og Agnar Frey Stefánsson hlýtur tilnefningu til Hönnunarverðlauna Íslands 2021. Næstu daga munum við svipta hulunni af tilnefningum ársins 2021 en verðlaunaafhending og málþing því tengt mun fara fram í Grósku þann 29. október næstkomandi. Takið daginn frá! 

Í umsögn dómnefndar segir: 
Konur sem kjósa er metnaðarfullur prentgripur þar sem kosningabaráttu kvenna á Íslandi undanfarin hundrað ár eru gerð ítarleg skil í máli og myndum. Hönnun og umbrot er eftir grafísku hönnuðina Snæfríði Þorsteins, Hildigunnar Gunnarsdóttur og Agnars Freys Stefánssonar.

Nálgun við viðfangsefnið einkennist af virðingu og verkinu er sköpuð viðeigandi og eftirtektarverð umgjörð. Rauði liturinn setur tóninn og framúrskarandi leturmeðferð og gott næmi fyrir myndrænum frásagnarstíl kjarna og myndgera pólitískan baráttuanda íslenskra kvenna, og þungavigt hans í sögulegu samhengi, í vel gerðum og aðgengilegum en jafnframt sérstæðum prentgrip.

–

Listræn stjórnun og framleiðsla: Blóð Stúdíó

UM VERKEFNIÐ

Konur sem kjósa fjallar um íslenska kvenkjósendur í eina öld. Titillinn vísar til kosningaréttarins en einnig til þess hvernig konur sköpuðu sér rými til að móta eigið líf og samfélagið allt. Sjónum er beint að einu kosningaári á hverjum áratug og þannig teknar ellefu sneiðmyndir af sögu kvenna undanfarin hundrað ár.

UM HÖNNUÐINA

Snæfríð og Hildigunnur hafa starfrækt saman hönnunarstúdíó frá árinu 2002 og unnið að fjölbreyttum verkefnum tengt listum, arkitektúr og menningu í gegnum tíðina. Snæfríð stundaði nám í iðnhönnun og grafískri hönnun við ESDI (École Supérieure de Design Industriel) í París og Hildigunnur er menntaður grafískur hönnuður frá ArtEZ Hogeschool voor de kunsten í Hollandi. Agnar Freyr Stefánsson er á lokaári sínu í grafísku hönnunardeildinni í konunglega Listaháskólanum í Den Haag
(e.the Royal Academy of Art, The Hague).

Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs, enda er vægi hönnunar í menningu, samfélagi og viðskiptalífi alltaf að aukast.

Hönnunarverðlaun Íslands beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning.

Á afhendingunni verða veitt Hönnunarverðlaun Íslands, Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands og viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun ársins 2021. 

Næstu daga verður hulunni svipt af tilnefningum ársins en afhending Hönnunarverðlauna Íslands 2021 fer fram þann 29. október í Grósku ásamt málþingi tengt verðlaunum. Nánari upplýsingar síðar en takið daginn frá. 

Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins.

Tengt efni

  • Söluhús við Ægisgarð tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2021

  • Hjaltalín - ∞  tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2021

  • MAGNEA - made in reykjavík tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2021

Dagsetning
8. október 2021
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Hönnunarverðlaun Íslands
  • Grafísk hönnun

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200