Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Laus staða deildarforseta í arkitektúr við LHÍ

20. október 2026

Listaháskóli Íslands leitar að reynslumiklum arkitekt í stöðu deildarforseta í arkitektúr.

Deildarforseti ber ábyrgð á stefnumótun fagsviðsins og útfærslu hennar í námi, kennslu og rannsóknum í samræmi við heildarstefnu skólans. Hann leiðir faglegt samtal deildarinnar, stýrir daglegri starfsemi, sinnir mannauðsmálum og málefnum nemenda.

Um fullt starf er að ræða og ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2027.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stefnumótun deildar í samræmi við heildarstefnumótun skólans
  • Uppbygging náms og kennslu á fagsviðinu
  • Þverfagleg samvinna milli deilda
  • Samstarf við fagvettvang og alþjóðlegt samstarf
  • Mannauðsmál og málefni nemenda
  • Gerð rekstrar- og fjárfestingaráætlana
  • Starfið getur falið í sér kennslu 

Starfið er unnið í samræmi við reglur Listaháskólans um akademísk störf sem eru í gildi hverju sinni.

Menntunar- og hæfniskröfur

Deildarforseti skal hafa akademískt hæfi. Hæfi umsækjanda verður metið samkvæmt reglum Listaháskóla Íslands um veitingu akademískra starfa, sjá nánar á lhi.is/log-og-reglur og eru umsækjendur hvattir til að kynna sé reglurnar við gerð umsóknar. 

Leitað er eftir umsækjendum sem búa yfir:

  • Fullnaðarnámi til starfsréttinda í arkitektúr (MArch eða sambærilegt)
  • Starfsreynslu á sviði arkitektúrs
  • Sterkri sýn á þróun náms í arkitektúr á háskólastigi
  • Reynslu af stjórnun
  • Reynslu af akademískri starfsemi á háskólastigi
  • Virkri þátttöku í eða sterkum tengslum við fagsamfélag arkitektúrs
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, afbragðs skipulagsgetu og lausnamiðuðu hugarfari
  • Mjög góðri íslensku og enskukunnáttu og hæfni til að miðla efni í töluðu og rituðu máli                       

Við ráðningu verður meðal annars litið til þess hvaða hæfileika ætla megi að umsækjandi hafi til samstarfs við aðra og hvernig eiginleikar hans geti nýst til starfa innan skólans. Frammistaða í viðtölum mun hafa mikið vægi við ákvörðun ráðningar. Að loknu viðtalsferli verður hæfi valinna umsækjenda metið samkvæmt reglum Listaháskóla Íslands um veitingu akademískra starfa, sjá nánar á lhi.is/log-og-reglur – umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglurnar við gerð umsóknar.  

Skil á umsókn

Umsóknargögnum skal skilað eigi síðar en 9. nóvember 2026 á netfangið starfsumsokn@lhi.is, merkt: Deildarforseti í arkitektúr.

Vegna hæfismats er æskilegt að við gerð umsóknar kynni umsækjendur sér þær reglur sem gilda um veitingu akademískra starfa, leiðbeiningar um gerð ferilskrár ásamt leiðbeiningum um gerð samantekta á ferli.

Til að umsókn sé gild skulu eftirfarandi gögn fylgja: 

  • Ferilskrá samkvæmt leiðbeiningum (pdf). Sjá hér.
  • Samantekt á listrænum störfum, rannsóknum, kennslu og akademískum störfum og stjórnun samkvæmt leiðbeiningum (pdf). Sjá hér.
  • Staðfest afrit af prófskírteinum. 
  • Greinargerð sem lýsir faglegri sýn umsækjenda á starfið og framtíðarsýn deildarinnar og hvernig viðkomandi myndi bera sig að því að móta og innleiða stefnu deildarinnar. Hámark 2 blaðsíður (pdf).
  • Nöfn tveggja meðmælenda. 
  • Auk þess er umsækjanda heimilt að skila inn öðrum gögnum til stuðnings umsóknar. 

Frekari upplýsingar um starfið veitir Katrín Johnson mannauðsstjóri, katrinj@lhi.is 

Farið verður með umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Skólinn áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Listaháskóli Íslands er leiðandi í sköpun og miðlun þekkingar í listum, eflir listræna fagmennsku og er í fararbroddi við þróun almennrar menntastefnu í listum. Listaháskólinn gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu sem eini háskólinn á fræðasviði lista á Íslandi.

Dagsetning
20. október 2026

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Arkitektúr
  • Architecture

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200