Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Lavaforming eftir s. ap arkitekta sýnt á alþjóðlegri listahátíð í Nice

19. nóvember 2026

Lavaforming, verkefni s. ap arkitekta sem var framlag Íslands til Feneyjatvíæringsins í arkitektúr árið 2025, heldur áfram að vekja athygli erlendis. Verkefnið er nú til sýnis á OVNi-tvíæringnum í Nice í Frakklandi, en áður hefur það meðal annars verið sýnt í Montreal og Rotterdam.

Lavaforming er sýnt í Forum d'Urbanisme et d'Architecture í Nice, þar sem framtíðarsýn verkefnisins er kynnt með kvikmynd og rannsóknarvinnu á skjám. Verkefnið kannar hvernig nýta megi hraun sem byggingarefni og hvernig náttúruöfl geti orðið grundvöllur nýrra byggingarhátta og borgarumhverfis. Þar fléttast saman arkitektúr, vísindi, tækni og list í vangaveltum um samband mannsins við náttúruna og möguleika framtíðarinnar.

„Það var mjög ánægjulegt að koma með Lavaforming til Nice og taka þátt í OVNi-tvíæringnum og það er alltaf spennandi að sýna verkefnið fyrir nýjum áhorfendahópi. Við héldum í svipaða uppsetningu á sýningunni og áður með sýnilegri rannsóknarvinnu á skjám og sérstöku svæði fyrir kvikmyndina auk þess sem textar og sögur Andra Snæs voru þýdd á frönsku,“ segir Arnhildur hjá s. ap arkitektum.

Hún segir sérstaklega ánægjulegt að sjá hvernig verkefnið höfðar til fólks utan arkitektúrsins og vekur spurningar sem eiga erindi við samfélagið í víðara samhengi.

„Maður finnur að verkefnið opnar á samtal sem nær langt út fyrir arkitektúrinn, sem er einmitt það sem við viljum ná fram með verkefninu. Til dæmis hvernig við lítum á náttúruauðlindir, hvað við köllum byggingarefni og hvernig við getum endurhugsað tengsl milli tækni, náttúru og samfélags. Það er ánægjulegt að finna að þessar spurningar vakna líka þegar við förum með sýninguna til annarra landa þótt hún spretti bókstaflega upp úr íslenskri náttúru.“

Frá Feneyjum til alþjóðlegs samtals

Lavaforming hófst sem rannsóknar- og hönnunarverkefni hjá s. ap arkitektum en fékk alþjóðlegan vettvang á Feneyjatvíæringnum árið 2025. Síðan hefur verkefnið ferðast víða og skapað samtal um nýjar leiðir í arkitektúr og nýtingu náttúruauðlinda.

„Lavaforming byrjaði sem svolítið skrítið og óhefðbundið rannsóknar- og hönnunarverkefni hjá s. ap arkitektum. Feneyjatvíæringurinn varð svo til þess að við fengum alþjóðlegan vettvang til að kynna þessar hugmyndir. Við erum ekki að segja að allir eigi að fara að byggja úr hrauni, heldur að það búi ótrúleg þekking, tækniþróun og jafnvel nýjar samfélagshugmyndir í því að skoða staðbundin efni og aðstæður upp á nýtt. Fyrir mér er þessi athygli fyrst og fremst staðfesting á mikilvægi þess að gefa sér tíma og rými til að hugsa stórt, prófa óhefðbundnar hugmyndir og vinna þvert á faggreinar,“ segir Arnhildur.

OVNi-tvíæringurinn er alþjóðlegur vettvangur fyrir vídeólist og samtímasköpun sem hefur frá árinu 2015 skapað tengsl milli myndlistar, tækni og nýrra miðla. Hátíðin fer fram í Nice og á Frönsku Rívíerunni frá 13. nóvember 2026 til 8. janúar 2027.

Nánari upplýsingar má finna á vef OVNi Festival.

Dagsetning
19. nóvember 2026
Höfundur
Gunnþórunn Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Lavaforming
  • Arkitektúr

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200