Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Leiðsögn og kynning arkitekta á sýningu um Keldnaland

23. september 2024

Opinn fyrirlestur miðvikudaginn 25. september kl. 17:00 þar sem arkitektar frá FOJAB kynna vinningstillögu sína um þróun Keldnalands í Borgarbókasafninu í Spönginni. Á safninu stendur yfir sýning á tillögunni, Crafting Keldur, sem hlaut langflest stig í alþjóðlegri samkeppni um þróun Keldnalands sem Reykjavíkurborg og Betri samgöngur stóðu fyrir.

FOJAB er ein af fremstu arkitektastofum Svíþjóðar og er þekkt fyrir framsækna nálgun sína í borgarþróun og sjálfbærri hönnun. Stofan, sem var stofnuð árið 1971, hefur vaxið í að vera hópur um það bil 150 sérfræðinga með starfsemi í Malmö, Stokkhólmi, Gautaborg og Helsingborg.

Af hálfu FOJAB leiðir Magdalena Hedman, landslagsarkitekt LAR/MSA, Keldnalandsverkefnið en hún er jafnframt yfir borgarþróun hjá stofunni. Aðrir í teyminu eru Joanna Attvall, arkitekt SAR/MSA og gæðastjóri umhverfismála, Åsa Samuelsson, arkitekt SAR/MSA og yfirmaður FOJABlab og Josephine Philipsen, landslagsarkitekt.

Keldnaland verður þétt, fjölbreytt og grænt borgarhverfi sem nýtur góðs af nálægð við náttúruna, góðum almenningssamgöngum og áherslu á fjölbreytta ferðamáta. Borgarlínan mun fara um svæðið sem þýðir fleiri valkosti fyrir íbúa með auknum lífsgæðum og góðri þjónustu. Íbúar eiga að geta lifað sjálfbæru og heilbrigðu hversdagslífi með vistvænum samgöngum, grænum svæðum, hverfisgörðum og torgum en markmiðið er lifandi borgarumhverfi.

Keldnaland er byggt upp í samvinnu Reykjavíkurborgar og Betri samgangna.

Vekjum athygli á því að sýningin er opin til 17. október á hefðbundum opnunartíma safnins.

Verið öll hjartanlega velkomin á fyrirlesturinn á miðvikudaginn!

  • Hlekkur á Facebook-viðburð
  • Upplýsingasíða um Keldnaland

 

Tengt efni

  • Rýnifundur-Skipulagssamkeppni um nýtt hverfi í Vík í Mýrdal

  • Skipulagsdagurinn 2024

  • KJARTAN SVEINSSON: ÍSLENZK BLOKK

Dagsetning
23. september 2024
Höfundur
Gerður Jónsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Arkitektúr

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200