Málþing: Að ná tökum á lífsferilsgreiningum (LCA)

Lífsferilsgreiningar (LCA) eru nú lögbundin krafa fyrir útgáfu byggingarleyfa á Íslandi í tilteknum umfangsflokkum. Af því tilefni býður Reduzer til málsþings í samstarfi við Arkitektafélag Íslands þann 29. janúar nk. þar sem farið verður yfir allt sem snýr að LCA í byggingariðnaði. Reduzer er alþjóðleg hugbúnaðarlausn og greiningarvettvangur sem sérhæfir sig í lífsferilsgreiningum og kolefnisreikningum fyrir byggingar og mannvirki.
Á málþinginu mun hópur sérfræðinga fjalla um allt sem snýr að lífsferilsgreiningum -„hvað, hvers vegna og hvernig“:
- Páll Hafstað & Áróra Árnadóttir frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) fjalla um núverandi LCA-kröfur og framtíðaráætlanir.
- Rafael Cao Romero Millan (Praxis arkitektúr) & Falk Krüger (A2F arkitektar) deila reynslu sinni af samþættingu LCA og arkitektúrs.
- Michael Lommertz frá Zero Emission Studio deilir reynslu sinni af LCA og áhrifum slíkra greininga á verkefni hans.
- Eiríkur Resch frá Reduzer kynnir hugbúnaðarlausn fyrirtækisins og hvernig hún samræmist nýjum reglugerðum á Íslandi.
Að lokum verða umræður um hvernig megi stuðla að sjálfbærum ákvörðunum.
Hvetjum félagsfólk til að mæta!
📅 Dagsetning: 29. janúar 2026
🕘 Tími: 9:00–11:00
📍 Staðsetning: Fenjamýri (fundarsalur), Gróska, Bjargargata 1, 102 Reykjavík, Ísland
🔗 Skráning: https://lnkd.in/eXEC9Y-z
Ath. málþingið verður á ensku.