Meistaranemar í arkitektúr við Listaháskóla Íslands bjóða á spennandi sýningu í Epal gallerí

Frá 18. til 28. september verður til sýnis úrval verka eftir Einar Sveinsson arkitekt (1906–1973). Á sýningunni verða til sýnis líkön og teikningar sem unnar voru á fyrstu vikum haustmisseris 2025 í námskeiðinu “Collective Research – Typology” þar sem viðfangsefnið er búsetuform og húsagerðir. Leiðbeinendur námskeiðsins eru Garðar Snæbjörnsson og Andri Gunnar Lyngberg Andrésson.
Einar Sveinsson var lykilpersóna í þróun borgarlandslags Reykjavíkur og starfaði sem borgararkitekt frá árinu 1934 til æviloka. Byggingar hans eru órjúfanlegur hluti af svipmóti borgarinnar, en framlag hans hefur ekki alltaf fengið þá viðurkenningu sem það á skilið.
Hvenær: Opnun 18. september kl 16:00-18:00
Hvar: Epal gallerí, Laugavegi 7 (neðri hæð)
