Menningarstefna í mannvirkjagerð: Hvað getur AÍ gert?
Árið 2007 setti mennta-og menningarmálaráðuneytið fram stefnu um byggingar hjá hinu opinbera undir heitinu Menningarstefna í mannvirkjagerð. Stefnan var endurskoðuð 2014 og er hún aðgengileg víða þó hún sé ekki mjög sýnileg í mjög breiðri merkingu þess orðs.
Í nýrri stefnu og aðgerðaráætlun stjórnar AÍ er kveðið á um stofnun starfshóps um endurskoðun á Menningarstefnu í mannvirkjagerð. Markmið þessa starfshóps er að kanna með hvaða hætti núverandi menningarstefna er í framkvæmd og hvort þörf sé á henni í sömu eða breyttri mynd. Einnig er það verkefni hópsins að koma með tillögur að því hvernig megi útfæra slíka stefnu eða skuldbindingar hins opinbera svo hún gildi fyrir öll þau ráðuneyti, sem að málaflokknum koma.
Allir þeir sem hafa áhuga á að vita meira um starfshópinn eða óska eftir þátttöku í honum, vinsamlegast sendið póst á netfangið ai@ai.is. Vinna í starfshóp er ólaunað starf.