Nemum í arkitektúr boðið í heimsókn á Frakkastíg 1

Arkitektafélag Íslands og BYKO bjóða arkitektúrnemum í heimsókn á Frakkastíg 1 fimmtudaginn 1. október kl. 17:00.
Arnhildur Pálmadóttir arkitekt hjá s.ap arkitektum og Björt Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Iðu byggingarfélags, taka á móti hópnum, sýna þeim húsið og segja frá verkefninu. Þær fjalla um hugmyndafræðina að baki Frakkastíg 1, hönnunina og helstu áskoranir í ferlinu.
Í verkefninu er lögð áhersla á endurnýtingu byggingarefna og nýstárlega notkun staðbundinna efna til að draga úr kolefnisspori byggingarinnar.
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Hvenær: Fimmtudaginn 1. október kl. 17:00
Hvar: Frakkastígur 1, Reykjavík
Verið hjartanlega velkomin!
