Ný heimasíða FÍLA

Félag íslenskra landslagsarkitekta hefur opnað nýja og glæsilega heimasíðu og er það sérstaklega ánægjulegt og viðeigandi að geta opnað hana 22. apríl, sem er dagur jarðar. Vinna og uppsetning hefur staðið yfir síðan janúar sl. og hefur að mestu verið unnin af vinnuhópi sem skipaður er Ástu Camillu Gylfadóttur, Daníel Jakobssyni, Guðrúnu Birnu Sigmarsdóttur og Svönu Rún Hermannsdóttur.
Markmiðið var að búa til einfalda og læsilega heimasíðu sem þó er troðfull af spennandi efni.
Við viljum hvetja alla til að kynna sér heimasíðuna.
