Nýtt viðmót fyrir byggingarleyfisumsóknir

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur gefið út nýtt og notendavænt viðmót fyrir umsóknir um byggingarleyfi. Með nýju viðmóti hefur ferlið verið einfaldað og gert þægilegra fyrir alla notendur. Skrifstofa skipulags- og byggingarmála hjá Reykjavíkurborg fagnar þessum framförum. Breytingin mun auka enn frekar skilvirkni í afgreiðslu byggingarleyfa og veita hönnuðum, framkvæmdaraðilum og öðrum notendum skýrari yfirsýn yfir stöðu mála, allt frá umsókn til útgáfu leyfis.
Innleiðing hjá Reykjavíkurborg 29. september 2025
Frá og með 29. september mun Reykjavíkurborg taka í notkun nýja umsóknarviðmótið. Hér eru gagnlegar upplýsingar um innleiðinguna:
Nýjar umsóknir:
• Lokað verður fyrir umsóknir í gegnum Mínar síður HMS föstudag 26. september kl. 14:00
• Opnað verður fyrir umsóknir inn í byggingarleyfi.hms.is mánudag 29. september kl. 12:00.
Virkar umsóknir:
Umsóknir sem eru í vinnslu hjá Reykjavíkurborg verða færðar frá Mínum síðum HMS yfir í nýja viðmótið. Þær verða því ekki lengur aðgengilegar á Mínum síðum HMS (eldri umsóknarleið), færist þannig öll umsýsla með þær yfir í byggingarleyfi.hms.is. Allar nánari upplýsingar um umsóknir í vinnslu veitir Reykjavíkurborg.
Úttektir:
• Áfangaúttektum verður áfram hægt að skila í bg.hms.is.
• Lokað verður fyrir framkvæmd og skil úttekta inn á Mínum síðum HMS.
Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að hafa samband við þjónustuver borgarinnar í síma 411 1111 eða í tölvupósti á netfangið upplysingar@reykjavik.is.