Opið fyrir innsendingar: Íslensku bókahönnunarverðlaunin 2026

Félag íslenskra bókaútgefanda (FÍBÚT) og Félag íslenskra teiknara (FÍT) hafa opnað fyrir innsendingar í Íslensku bókahönnunarverðlaunin.
Verðlaunin voru stofnuð í fyrra og verða því afhent í annað sinn 15. janúar 2027 á Hönnunarsafni Íslands. Þau eru veitt í tveimur flokkum, fyrir bókarkápu og bókahönnun.
Verðlaunaðar bækur öðlast þátttökurétt í alþjóðlegum samkeppnum af sama toga, eins og Best Book Design from All Over the World sem Stiftung Buchkunst hefur staðið fyrir í rúm 50 ár, en bækur sem hlotið hafa þau verðlaun hafa verið sýndar á Hönnunarsafni Íslands frá árinu 2021.
Frestur til að leggja fram bækur er til 30. október. Gjaldið er 20.000 krónur fyrir hvert verk, og verða framlagðar bækur teknar fyrir í báðum flokkum.
Skila skal einu eintaki af hverri bók á skrifstofu Miðstöðvar hönnunar og arkitektúrs í Grósku, Bjargargötu 1.
Tilkynnt verður um tilnefningarnar í lok nóvember.