Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
  • Fréttir

    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
  • Verkefni

    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
  • Íslensk hönnun og arkitektúr

    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
  • Fyrir hönnuði

    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
  • Fagfélög

    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Opið fyrir umsóknir í nýsköpunarsamkeppnina Global Change Awards

2. september 2019
GCA sigurvegari 2019

Nýsköpunarkeppnin Global Change Awardsopnar fyrir umsóknir þar sem 1 milljón evra er í boði fyrir fimm bestu hugmyndirnar.

Nýsköpunarkeppnin Global Change Award var sett á laggirnar árið 2015 af H&M Foundation, í samvinnu við Accenture og Konunglega sænska tækniháskólann KTH. Á þeim tíma hafa keppninni borist yfir 14.000 umsóknir frá 182 löndum.
 Keppnin miðar að því að draga úr neikvæðum áhrifum tískuiðnaðarins með því að styðja við og styrkja nýsköpun og þróun á sviði textíls- og fataframleiðslu. Margar af vinningshugmyndum fyrri ára hafa haldið áfram í þróunarvinnu og eru vörur þeirra komnar á markað.



„Á þeim fimm árum sem Global Change Award hefur verið starfrækt hefur keppnin reynst frábær stökkpallur fyrir frumkvöðla til að komast inn í tískuiðnaðinn og umbreyta honum innan frá. Við höfum séð fyrri sigurvegara fara frá hugmyndavinnu og yfir í að markaðssetja vöruna sína. Það sem er hinsvegar mikilvægast er að hvetja nýja kynslóð skapara, vísindamanna og frumkvöðla til að draga úr núverandi áhrifum tískuiðnaðarins á náttúruna með nýsköpun og þróunarvinnu. Næsta stóra hugmynd sem mun breyta öllu getur í raun komið frá hverjum sem er. Ef þú hefur hugmynd, sendu hana inn!“, segir Karl-Johan Persson, stjórnarmaður í H&M Foundation og forstjóri H&M í fréttatilkynningu frá sænska fataframleiðandanum.

Í viðbót við peningastyrkinn fá sigurvegararnir fimm sæti í eins árs nýsköpunarhraðaáætlun sem fer fram í Stokkhólmi, New York og Hong Kong. Sigurvegaranir hljóta stuðning frá H&M Foundation, Accenture og KTH við að þróa frekar hugmyndir sínar.

Vinningshugmyndin þarf að geta stuðlað að því að gera tískuiðnaðinn að hringlaga hagkerfi. Önnur viðmið eru að hugmyndin sé nýjung, að hún sé efnahagslega sjálfbær og að nýsköpunarteymið sé tilbúið í vinnuna framundan. Sigurvegararnir geta unnið með hverjum sem er. Hvorki H&M Foundation né H&M Group eiga neinn hlut í hugmyndinni né eiga tilkall til hugverkaréttinda hennar.

Skilafrestur umsókna er til 16. október 2019 og eru fimm sigurvegarar krýndir við hátíðalega verðlaunaafhendinguna í ráðhúsinu Stokkhólmi í apríl 2020.

Allt um Global Change Award, fyrri vinningshugmyndir og hvernig á að sækja um hér.

Tengt efni

  • Aníta Hirlekar — Nýir fletir

  • Indriðaverðlaunin
  • Alþingi samþykkir breytingu á skattlagningu á höfundarréttuvörðu efni

Dagsetning
2. september 2019

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Fatahönnun
  • Nýsköpun

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200

Þessi vefur notar vafrakökur (e. cookies) til að tryggja sem besta upplifun af notkun vefsins. Lesa meira um vafrakökur.