Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Opið er fyrir umsóknir í Hönnunarsjóð - frestur til 4. febrúar

7. janúar 2021

Opið er fyrir umsóknir í Hönnunarsjóð en um er ræða almenna- og ferðastyrki. Umsóknarfrestur er til 4. febrúar og fer úthlutun fram þann 4. mars.

Þetta er fyrsta úthlutun ársins 2021 en stjórn Hönnunarsjóðs er búin að festa dagsetningar varðandi umsóknarfresti og úthlutanir næsta árs. Hægt er að sjá allar dagsetningar hér.

Hönnunarsjóður veitir styrki til margvíslegra verkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs: þróunar og rannsókna, verkefna og markaðsstarfs auk ferðastyrkja.

Hlutverk Hönnunarsjóðs er að efla þekkingu, atvinnu- og verðmætasköpun á sviði hönnunar og arkitektúrs með fjárhagslegum stuðningi en sjóðurinn er fjármagnaður af stjórnvöldum.

Hönnunarsjóður stuðlar einnig að auknum útflutningi íslenskrar hönnunar með því að styrkja kynningar- og markaðsstarf erlendis.

Þróunar- og rannsóknarstyrkir 

Er ætlað að styrkja rannsóknir og þróun nýrra hugmynda eða lausna. Þróunar- og rannsóknarstyrkir geta að hámarki numið 2 milljónum króna. Verkefni sem hlotið hefur þróunar- og rannsóknarstyrk á möguleika á að fá verkefnastyrk síðar.

Verkefnastyrkir 

Er ætlað að styrkja nýjar hugmyndir eða lausnir sem búið er að þróa og móta og eru komin á útfærslu- og framkvæmdastig. Verkefnastyrkir geta að hámarki numið 5 milljónum króna. Verkefni sem hlotið hefur verkefnastyrk á möguleika á að fá markaðs- og kynningarstyrk síðar.

Markaðs- og kynningarstyrkir 

Er ætlað að styrkja verkefni sem komin eru af útfærslu- og framkvæmdastigi og eru fullmótuð og tilbúin til markaðssetningar. Markaðs- og kynningarstyrkir geta að hámarki numið 2 milljónum króna.

Ferðastyrkir 

Er ætlað að auka möguleika hönnuða og arkitekta á því að taka þátt í erlendum samstarfs- og kynningarverkefnum, sýningum, viðburðum, ráðstefnum eða viðskiptastefnumótum. Hægt er að sækja um ferðastyrk fyrir einn einstakling eða fleiri til sömu ferðar. Veittir verða allt að 15 ferðastyrkir í hverri úthlutun að upphæð 100 þúsund hver.

Heimasíða Hönnunarsjóðs

Hér má nálgast umsóknarferlið, umsóknir og frekari upplýsingar.

Ýttu hér

Tengt efni

  • Árið 2020 í hönnun og arkitektúr

  • Hönnunarsjóður
  • Íslenskt gler, snjallhringur og stafrænt strokhljóðfæri meðal styrkþega úr Hönnunarsjóði

  • Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu, stafrænar flíkur og vatnavellíðan meðal styrkþega Hönnunarsjóðs

Dagsetning
7. janúar 2021
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Hönnunarsjóður

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200