Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Opnun: Örverur á heimilinu

23. september 2024

Föstudaginn 27. september kl 17:00 opnar sýning Örverur á heimilinu í Hönnunarsafni Íslands. Örverur á heimilinu er hluti af sýningarröðinni Heimsókn á Hönnunarsafni Íslands.

Sýningin leiðir gesti í samstarf mannfólks við þessar örsmáu félagsverur, sem er að finna í svo að segja öllum hornum heimilisins. Sýningin beinir kastljósinu að fjölbreyttri örveruflóru sem umlykur og býr innra með fólki, því ólíka samstarfi sem fólk á við örverur í hversdeginum og er ætlað að hvetja það til frekara samstarfs við örverur dags daglega.

Þó heimur örvera sé að mestu hulinn augum þá á fólk engu að síður í margskonar samstarfi við örverur innan sem utan líkamans. Talið er að meðalmanneskjan sé samsett úr um 30 billjónum mannlegra fruma en 38 billjónum örvera. Þannig má segja að mannslíkaminn sé afrakstur af samstarfi ólíkra tegunda. Samstarf við örverur á sér líka stað utan líkamans og teygir sig meðal annars inn á heimili, til dæmis í formi moltugerðar og súrdeigsbaksturs.

Örverur á heimilinu er ein af afurðum þverfaglega rannsóknarverkefnisins Samlífi manna og örvera í daglega lífinu undir stjórn dr. Valdimars Tr. Hafstein. Verkefnið, sem staðið hefur undanfarin þrjú ár, leiðir saman þjóðfræðinga, mannfræðinga, næringarfræðinga og líffræðinga frá Háskóla Íslands og Matís.

Sýningarstjóri er Ragnheiður Maísól Sturludóttir, en sýningarhönnun og textagerð er unnin í samstarfi við Elínu Örnu Kristjánsdóttur og Ingibjörgu Sædísi. Sýningin er einnig unnin í samstarfi við starfsfólk Hönnunarsafns Íslands, Melta, Biopol, Ístex, Textílmiðstöð Íslands, Elin Margot, Matís, Þjóðminjasafnið og Tæknisetrið.

Rannsakendur í Samlífi manna og örvera í daglega lífinu eru Áki G. Karlsson, Birna G. Ásbjörnsdóttir, Bryndís Eva Birgisdóttir, Eysteinn Ari Bragason, Helga Ögmundardóttir, Jón Þór Pétursson, Ragnheiður Maísól Sturludóttir, Sandra Smáradóttir, Signý Guðmundsdóttir, Sigurlaug Skírnisdóttir, Valdimar Tr. Hafstein og Viggó Þór Marteinsson.

Sýningin er styrkt af Rannís, Nýsköpunarsjóði námsmanna og NordForsk.

Í tengslum við sýninguna fer fram performatívan matarviðburð laugardaginn 5. október kl. 16 sem ber yfirskriftina „Það jafnast ekkert á við brauð“ og fimmtudaginn 10. október frá 13-16 verður boðið upp á fyrirlestra, smiðjur og smakk í tengslum við sýninguna.

Sýningin stendur til 17. nóvember

Hönnunarsafn Íslands, Garðatorgi,  er opið alla daga frá 12-17 nema mánudaga.

Meira hér

Tengt efni

  • Flétta verðlaunaðar á Maison&Objet í París

  • Strik Studio hannar nýtt einkenni Alþingis

  • Ha - hvað er að gerast?

Dagsetning
23. september 2024
Höfundur
Klara Rún Ragnarsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Fagfélög
  • Hönnunarsafn Íslands
  • Greinar

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200