Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Plastplan er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2022

27. október 2022

Plastplan, stofnendur Björn Steinar Blumenstein og Brynjólfur Stefánsson, er tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2022. Verðlaunin fara fram í Grósku þann 17. nóvember.

Rökstuðningur dómnefndar:
Starf hönnunarstofunnar  og plastendurvinnslunnar Plastplans hefur frá stofnun þess árið 2019 einkennst af sköpunargleði, tilraunamennsku, úrræðasemi og óbilandi hugsjón.

Plastplan hefur á þessum þremur árum tekist á við að raungera hringrás plastefna með því að taka það sem til fellur af plasti frá fyrirtækjum innanlands og þróa og framleiða úr því ný og falleg verk, ýmist fyrir sína eigin vörulínu, eða nytjahluti fyrir fyrirtækin sem Plastplan er í samstarfi við. Innviða- og húsgagnahönnun þeirra fyrir Höfuðstöðina, sem er listasafn og menningarsetur byggt í kringum Chromo Sapiens, verk Shoplifter Art / Hrafnhildar Arnardóttur, er einstaklega vel heppnað í viðleitni sinni til að skapa fjölnota umgjörð sem hvorttveggja endurspeglar verk Shoplifters og flæðir samhliða þeim á eftirtektarverðan hátt.

Um Plastplan:
Plastplan er hönnunarstudio og plastendurvinnsla stofnuð árið 2019 af vöruhönnuðinum Birni Steinari Blumenstein og Brynjólfi Stefánssyni. Markmið Plastplan er að stuðla að fullkominni hringrás plastefna og með því sýna fram á mikla möguleika sem felast í hráefninu. Plastplan hefur frá árinu 2017 byggt, þróað og hannað vélar fyrir plastendurvinnslu til að efla úrvinnslu. 

Plastplan á í stöðugu samstarfi við framsækin fyrirtæki, eins  Icelandair, Ikea, Krónuna og 66° Norður og hjálpar þeim að taka auka græn skref í rekstri. Í því felst að Plastplan sækir plast vikulega og skilar sama plasti til baka í formi nýrra nytjahluta, hannaða og framleidda af Plastplan.

Um stofnendur:
Björn Steinar er menntaður vöruhönnuður og hefur á undanförnum árum einblínt á umhverfis- og samfélagstengd verkefni. Sem dæmi má nefna; Skógarnytjar – þróun húsgagna úr íslenskum við, Catch of the day – þróun vodka úr aflögu ávöxtum frá matvælainnflytjendum og plastendurvinnslustöðin Plastplan.
Brynjólfur hefur starfað við rannsóknir og uppbyggingu í tengslum við plastendurvinnslu frá árinu 2018. Fyrir það hefur hann sankað að sér þekkingu úr ýmsum áttum og hefur meðal annars lagt stund á tölvunarfræði og vélaverkfræði samhliða rekstri Plastplan.

–

Dómnefnd Hönnunarverðlauna Íslands skipa þau Sigríður Sigurjónsdóttir, hönnuður og safnstjóri Hönnunarsafns Íslands sem er formaður dómnefndar, María Kristín Jónsdóttir, hönnuður, varaformaður, Ragna Fróðadóttir, hönnuður, Þorleifur Gunnar Gíslason, hönnuður, Arna Sigríður Mathiesen, arkitekt, Margrét Kristín Sigurðardóttir fyrir Samtök Iðnaðarins og Daniel Byström, hönnuður og stofnandi Design Nation. 

Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs, enda er vægi hönnunar í menningu, samfélagi og viðskiptalífi alltaf að aukast.

Hönnunarverðlaun Íslands beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning.

Verðlaunaafhendingin fer fram þann 17. nóvember næstkomandi ásamt samtali tengdum verðlaununum. Þar verða veitt Hönnunarverðlaun Íslands, Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands og viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun ársins 2022. Taktu daginn frá!

Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins.

Tengt efni

  • Snert á landslagi tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2022

  • Hljóðhimnar tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2022

  • Áríðandi tilraunir á raunveruleikanum tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2022

Dagsetning
27. október 2022
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Hönnunarverðlaun Íslands
  • Fagfélög

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200