Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Prjónavetur í Listasafni Sigurjóns í Laugarnesi - FÖR sýning Andreu Fanneyjar Jónsdóttur, textílhönnuðar og klæðskerameistara.

12. nóvember 2024

Prjónavetur í Listasafni Sigurjóns í Laugarnesi hefst næstkomandi föstudag með FÖR sýningu Andreu Fanneyjar Jónsdóttur, textílhönnuðar og klæðskerameistara. Sýningaropnun er föstudaginn 15. nóvember, kl. 17:00.

Prjónavetur í Listasafni Sigurjóns í Laugarnesi er röð stuttra sýninga og viðburða veturinn 2024−25, þar sem ljósi er varpað á prjónahönnun og stöðu íslensks prjónaiðnaðar. Markmiðið er að kynna hluta af þeirri flóru prjónahönnunar sem hefur verið framleidd á Íslandi síðustu ár. Verkefnið gengur einnig út á að opna umræðu um stöðu íslensks prjónaiðnaðar fyrr og nú, og líta til framtíðar.

Prjónaveturinn hefst með För, sýningu Andreu Fanneyjar, sem opnar föstudaginn 15. nóvember klukkan 17:00 og stendur tvær næstu helgar, 16.-17. og 23.-24. nóvember.

Þar verða sýndar prjónaflíkur sem Andrea Fanney hefur hannað og framleitt á Íslandi síðustu ár, innblásnar af fuglalífi höfuðborgarinnar. Hver flík er sprottin úr minningum af fuglum og manneskjum sem þeim tengdust. Efniviður er allt frá handspunnu bandi úr íslenskri ull yfir í hefðbundið iðnaðarband.

Verk Andreu eru sett upp í samspili við skúlptúra Sigurjóns Ólafssonar og grafítverk sýningarinnar Laugarneshughrif eftir kanadíska listamanninn Carl Philippe Gionet.

Sýningin För tengist áleitnum spurningum um ábyrgð okkar á mikilvægum búsvæðum fuglategunda sem deila höfuðborginni með okkur. Fá náttúruleg kjörlendi fugla eru eftir í borgarlandinu en Laugarnestangi er eitt þeirra. Andrea Fanney hefur, ásamt hverfasamtökum Laugarness, unnið að friðlýsingu svæðisins og aukinni meðvitund almennings um mikilvægi þess fyrir fjölbreytni lífríkisins.

Andrea Fanney er klæðskerameistari og textílhönnuður. Hún hefur hannað og framleitt prjónavörur á Íslandi síðan 2007. Andrea bjó um tíma í Bretlandi, þar sem hún lærði og starfaði hjá fatahönnuðinum Alexander McQueen í London og nam síðar textílhönnun við Glasgow School of Art. Í kjölfarið tók hún við stöðu deildarstjóra við Textíldeild Myndlistaskólans í Reykjavík. Síðustu ár hefur hún verið sjálfstætt starfandi hönnuður og stundakennari í Myndlistaskóla Reykjavíkur og Listaháskóla Íslands. Andrea Fanney fékk fyrr í mánuðinum styrk úr Hönnunarsjóði fyrir að standa að og halda Prjónavetur í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar í Laugarnesi.

Listasafn Sigurjóns Ólafssonar er opið í vetur á laugardögum og sunnudögum 13-17. 

Sýningarstjórn: Brynhildur Pálsdóttir

Grafísk hönnun: Elín Edda

Andrea Fanney Jónsdóttir, textílhönnuður og klæðskerameistari.
Dagsetning
12. nóvember 2024
Höfundur
Guðrún Edda Einarsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Textílhönnun
  • Fagfélög

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200