Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Ragna Fróðadóttir er bæjarlistamaður Kópavogs 2019

27. maí 2019
Ragna Fróða var kynnt sem bæjarlistamaður Kópavogs við hátíðlega athöfn í Salnum fyrir helgi.

Ragna Fróðadóttir, textílhönnuður og myndlistarmaður er bæjarlistamaður Kópavogs 2019. Valið á Rögnu var kynnt við hátíðlega viðhöfn í Salnum í Kópavogi.Þetta kemur fram á vef Kópavogsbæjar hér.

Ragna mun sem bæjarlistamaður vinna í samvinnu við Menningarhúsin í Kópavogi að verkefnum og viðburðum sem tengjast textíl og umhverfissjónarmiðum. „Ég hef mikið velt fyrir mér umhverfisvitund í tengslum við textíl og hef áhuga á að tengja saman börn og eldri borgara í því verkefni. Samvinna kynslóða í handverki er mjög áhugaverð að mínu mati og verður spennandi að fá tækifæri til að vinna að henni og vil ég þakka lista- og menningarráði fyrir tilnefninguna sem bæjarlistamaður Kópavogs,“ segir Ragna. 
Það var Karen E. Halldórsdóttir formaður lista- og menningarráðs sem kynnti tilnefninguna að viðstöddum Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra Kópavogs.
 Ragna tekur við keflinu af Stefáni Hilmarssyni sem var bæjarlistamaður 2018.

Ragna Fróðadóttir er fædd árið 1970. Hún hefur hefur verið búsett í Kópavogi reglulega frá árinu 2001 en verið langdvölum erlendis á því tímabili.
Textílhönnuðurinn og myndlistarmaðurinn Ragna Fróðadóttur vinnur á mörkum myndlistar og hönnunar. Hún lærði fata- og textílhönnun í París á árunum 1992-1995 og nam síðan við textíldeild Myndlista- og Handíðaskólann í Reykjavík 1996-1998. Ragna býr yfir víðtækri reynslu úr myndlistar- og hönnunarheiminum. Í dag er hún deildarstjóri textíldeildar Myndlistaskólans í Reykjavík. Einnig kennir hún sjónræna rannsóknarvinnu og Trend Forecasting við fatahönnunardeild LHÍ. 2008-2015 bjó Ragna að stærstum hluta til í New York borg þar sem hún vann fyrir Lidewij Edelkoort, einn þekktasta futurista hönnunarheimsins. Hún starfaði þar sem ráðgjafi og verkefnastjóri, ásamt því að reka Bandaríkjadeild Trend Union - fyrirtæki Lidewij Edelkoort.

Á árunum 2012-2014 bjó Ragna einnig í Berlín og skipti tíma sínum á milli NYC og Berlín. 
Þar var hún meðal annars sýningarstjóri hönnunar- og listsýningarinnar Tölt-Inspiration Islandspferd. Það var viðamikið sýningar verkefni á vegum Sendiráðs Íslands sem var sett upp í tengslum við Heimsmeistaramót íslenska hestsins í Berlín 2013. Sýningin var síðar sett upp víðar sem farandsýning – meðal annars í Norræna húsinu í Reykjavík. Í tæp 10 ár rak Ragna eigin vinnustofu og verslun í miðbæ Reykjavíkur og hannaði fatalínu undir nafninu Path of Love Design. Á þeim tíma tók hún þátt í fjölda sýninga bæði hérlendis og erlendis og hannaði fatalínur og textíl fyrir einstaklinga og hópa. Ragna hefur skipulagt alþjóðlegar ráðstefnur bæði á Íslandi, í New York og Þýskalandi. Nýverið skipulagði hún ráðstefnuna Arfleifð mætir framtíð, í tengslum við fund Norrænu textílsamtakanna – NTA - á Íslandi. Ráðstefnan var styrkt af Reykjavíkurborg og Nordisk Kulturfond og var jafnframt hluti af dagskrá Hönnunarmars 2019.

Hér er hægt að skoða verk Rögnu nánar
Ragna ásamt Karen Elísabet Halldórsdóttur, formanni lista- og menningarráð, Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra og Soffíu Karlsdóttur, yfirmanni menningarmála í Kópavogi.
Dagsetning
27. maí 2019

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200