Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Rammagerðin opnar nýja verslun í sögufrægu húsi

27. nóvember 2024

Ný og glæsileg verslun Rammagerðarinnar að Laugavegi 31, var opnuð með pompi og prakt fimmtudaginn 14. nóvember síðastliðinn. Mikill fjöldi hönnunarunnenda mætti í opnunarhóf verslunarinnar í þessu sögufræga húsi sem áður hýsti Biskupsstofu en Basalt arkitektar sáu um hönnun á versluninni.

Heilmikil stemning var á báðum hæðum hússins, enda er Rammagerðin sannkallað heimili íslenskrar hönnunar og handverks og hefur verið það síðan 1940. Rammagerðin er í eigu Bjarneyjar Harðardóttur og Helga Rúnars Óskarssonar en þau eru einnig eigendur 66N. Þau sáu mikið tækifæri í því að opna verslun sem væri vettvangur fyrir íslenska hönnuði og handverksfólk. Með tilkomu þessarar nýju verslunar skapar Rammagerðin glæsilega umgjörð sem íslensk hönnun og handverk á skilið. 

Á efri hæð hússins má finna útibú frá Gallerý Port sem sérhæfir sig í ungu og upprennandi listafólki en þar opnaðu einnig ljósmyndasýning eftir Önnu Maggý þar sem viðfangsefnið eru íslenskar listakonur klæddar íslenskri ull. Á opnunni tók svo kórinn Kliður lagið í sögufrægu tröppum hússins, en tröppurnar eru sannkallað aðdráttarafl og hafa fengið verðskuldaða andlitslyftingu í höndum Basalt arkitekta.

Rammgerðin notaði einnig tækifærið og kynnti til leiks Jólaköttinn 2024 sem í ár er hannaður af glerlistamanninum Anders Vange hjá Reykjavík Glass. Sjón er sögu ríkari!

Meðal þeirra vörumerkja sem finna má á Laugavegi 31 er Fischersund ilmhús, Hvammsvík, 66N, Reykjavík Glass, Bjarni Viðar keramiker, Varma, Dagsson, BAHNS, Taramar og As we Grow svo fátt eitt sé nefnt.

Laugavegur 31 verður án efa fyrsta stoppistöð íslendinga í jólagjafa hugleiðingum enda hvergi breiðara úrval af fallegri gjafavöru sem ýmist er hönnuð eða framleidd á Íslandi.

 

Gallery Port
Sonja Bent fra Nordic Angan og Gríma Björg Thorerensen frá Hvammsvík.
Bjarney Harðardóttir og Helgi Rúnar Óskarsson eigendur Rammagerðarinna og 66N
Baldur Björnsson, Anna Þórunn Hauksdóttir, Úlfhildur Þoka (barn), Linda Jóhannsdóttir hönnuður, Þórey Björk Halldórsdóttir. Þórey og Baldur eru á bakvið
Hægt að prófa ilmsturrtuna frá Hvammsvík og Nordic Angan
Kórinn Kliður
Anders Vange með jólaköttinn
Jólakötturinn 2024
Jólaskraut eftir Anders Vange
Björn ´Borko´Kristjánsson og Hildur Jóhannesdóttir
Dagsetning
27. nóvember 2024
Höfundur
Guðrún Edda Einarsdóttir
Ljósmyndari
Róbert Arnar

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200