Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Safnanótt í Hönnunarsafni Íslands

31. janúar 2024

Það verður mikil um að vera á Hönnunarsafni Íslands á Safnanótt þann 2. febrúar. Opnun er á sýningu Lilýar Erlu Adamsdóttur, Veggplöntur, sem er heimsókn inn í föstu sýninguna Hönnunarsafnið sem heimili. Þá verður innflutningsboð hjá gullsmiðnum Mörtu Staworowsku sem verður í vinnustofudvöl í safninu næstu þrjá mánuði. Dagskráin hefst kl. 20.

Sýning Lilýar Erlu Adamsdóttur, Veggplöntur er heimsókn inn í föstu sýninguna Hönnunarsafnið sem heimili. Fólk hefur þörf til að skreyta og breyta svo mörg heimili taka stöðugum breytingum. Lilý Erla er þekkt fyrir textílverk sín en hefur undanfarið verið að þróa veggteikningar sem minna á veggfóður en eru handteiknaðar beint á veggi.

Þá verður einnig innflutningsboð hjá gullsmiðnum Mörtu Staworowsku sem verður í vinnustofudvöl í safninu næstu þrjá mánuði. Marta er lærður landslagsarkitekt og gullsmiður. Hún vinnur talsvert með víravirki og það verður áhugavert fyrir gesti safnsins að fá innsýn í störf hennar næstu vikur.

Bassaleikarinn Birgir Steinn og félagar bjóða upp á djass á efri hæð safnsins milli 20-21. Samtímis heldur DJ Kjörk uppi stuðinu í innflutningsboðinu hjá Mörtu.

Dagskráin er liður í Safnanótt í Garðabæ en fjölskyldudagskrá verður á Bókasafni Garðabæjar frá kl. 17 - 20 þar sem grafíski hönnuðurinn Una María verður m.a. með smiðju í skapandi skrifum.

Viðburður á Facebook
Lily Erla Adamsdóttir
Marta Staworowska

Tengt efni

  • Rannsóknarstyrkir til meistaranema á sviði skapandi greina

  • Opið fyrir innsendingar í FÍT verðlaunin 2024

  • Forsala hafin á DesignTalks 2024

Dagsetning
31. janúar 2024
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Hönnunarsafn Íslands

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200