Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • HönnunarMars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - hönnunar og arkitektúr stefna
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Fyrirhuguð samkeppni um uppbyggingu nýs alþjóðlegs Norðurslóðakjarna í Vatnsmýrinni í Reykjavík

13. júlí 2026

Fyrir hönd Stofnunar Ólafs Ragnars Grímssonar og Hringborðs Norðurslóða – Arctic Circle kynnum við fyrirhugaða hönnunarsamkeppni í tengslum við byggingu nýrra alþjóðlegra höfuðstöðva um brýnustu málefni heimsins með sérstakri áherslu á Norðurslóðir. Samkeppnin er haldin í samstarfi við Arkitektafélag Íslands.

Byggingin hefur fengið vinnuheitið Norðurslóð. Henni er ætlað að verða heimili alþjóðlegrar og þverfaglegrar samvinnu. Þar verður stofnunum, háskólum, fyrirtækjum og einstaklingum gert kleift að efla þekkingu og samstarf um Norðurslóðir og önnur veigamikil málefni undir sama þaki. Þar með talið að auka kunnáttu og samvinnu í þágu sjálfbærra úrræða á sviðum loftslagsbreytinga, grænnar orku, hafsins og alþjóðlegrar samvinnu.

Hugmyndafræði byggingarinnar er byggð á miklum árangri Hringborðs Norðurslóða – Arctic Circle Foundation. Hringborðið var stofnað árið 2013 af þáverandi forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni og fleiri alþjóðlegum aðilum með það að markmiði að útbúa samstarfsvettvang þar sem helstu leiðtogum og hagsmunaaðilum Norðurslóða er stefnt saman á lýðræðislegan hátt.

Frá stofnun Arctic Circle hafa hátt í 3000 manns frá yfir 70 löndum komið saman á hverju ári, kynnst, fræðst og myndað tengsl sem leitt hafa af sér mikilvæg verkefni og nýja þekkingu í þágu sjálfbærrar þróunar Norðurslóða og heimsins. Fyrirhugaðri byggingu er ætlað að heiðra ævistarf Ólafs Ragnars Grímssonar á sviði loftslagsmála og alþjóðlegrar samvinnu og beisla þann kraft sem myndast árlega á þremur dögum í Reykjavík með því að viðhalda og beina honum í þágu nýrra lausna. Ísland er kjörinn staður fyrir þennan griðastað þar sem landið er leiðandi í grænni orku, sjálfbærri nýtingu auðlinda hafs og lands, lýðræði,  jafnrétti, friði og velsæld.

Byggingin mun rísa á einstökum stað í hjarta Reykjavíkur. Lóðin liggur á jaðri uppbyggingarsvæðis Háskóla Íslands og Vísindagarða, þétt við Vatnsmýrina, á horni Njarðargötu og Sturlugötu með óhindrað útsýni yfir friðland fugla og í átt að miðbænum. Hún er einstök með tilliti til aðgengis, sýnileika og notkunar. Stutt er í miðborg Reykjavíkur með allri þeirri þjónustu sem þar býðst. Almenningssamgöngur þjónusta svæðið vel, fyrirhuguð stoppistöð Borgarlínu verður beint yfir utan bygginguna, Reykjavíkurflugvöllur er í göngufæri og stór alþjóðaflugvöllur í 50 mínútna ökufjarlægð.

Markmiðið með samkeppninni er að fá fram framsæknar og vel útfærðar tillögur að frumgerð, skipulagi og útliti byggingar sem mun hýsa alþjóðlegar skrifstofur, rannsóknasetur, kennslu-, viðburða- og sýningarrými á breiðu sviði Norðurslóðamála. Stefnt er að því að byggingin verði aðsetur fyrir viðeigandi einingar innan Háskóla Íslands og hýsi innlend og alþjóðleg verkefni á sviðum háskólasamstarfs. Markmiðið er að byggingin verði kennileiti og griðastaður fyrir starfsemina. Útkoman verður nýtt við undirbúning að hönnun byggingarinnar og í kynningargögnum um þá umgjörð sem byggingin skapar utan um hugmyndafræði Arctic Circle og Stofnunar Ólafs Ragnars Grímssonar.

Heildarstærð byggingarinnar verður um 20.000 m² þar af 16.400 m² ofanjarðar. Gert er ráð fyrir að unnt verði að reisa bygginguna í áföngum. Verkkaupi hefur í samráði við Arkitektafélag Íslands valið að kynna verkefnið fyrir arkitektum og arkitektastofum. Þegar fyrir liggur hvaða aðilar óska eftir þátttöku verða 5 - 7 valdir í fyrri hluta keppninnar. Fullum trúnaði er heitið við úrvinnslu gagna og hefur trúnaðarmaður verið ráðinn í verkefnið sem er utan dómnefndar.

Hér að neðan má finna drög að samkeppnislýsingu og tímaáætlun verkefnisins sem aðilar geta kynnt sér.

Svona fer ferlið fram:

1. Staðfesting á áhuga – fyrir 15. ágúst 2026

Arkitektastofur sem hafa áhuga á að taka þátt skulu senda tölvupóst til trúnaðarmanns samkeppninnar á: trunadarmadur@ai.is

Staðfesting þarf að berast eigi síðar en 15. ágúst 2026.

Með tölvupóstinum skal fylgja eitt skjal, að hámarki ein A4 síða, með grunnupplýsingum um arkitektastofuna / teymið, þar á meðal:

  • viðeigandi reynslu,
  • faglega hæfni,
  • getu til að takast á við verkefni af þessari stærðargráðu.

Á þessu stigi á ekki að skila hönnunartillögu. Einungis skal senda staðfestingu á áhuga ásamt einni A4 síðu um arkitektastofuna.

2. Val á þátttakendum

Valnefnd velur 5–7 teymi til þátttöku úr hópi þeirra arkitektastofa sem hafa staðfest áhuga og sent inn umbeðnar upplýsingar.

Aðeins þeir aðilar sem verða valdir fá boð um þátttöku í samkeppninni.

3. Samkeppnin hefst 24. ágúst 2026

Samkeppnin hefst formlega 24. ágúst 2026, þegar vefsvæði samkeppninnar verður opnað fyrir valda þátttakendur.

Samkeppnin verður í tveimur fösum:

Fyrri fasi: sex vikur.

Síðari fasi: rúmlega sex vikur.

Lokaskil samkeppninnar verða 1. desember 2026.

Drög að samkeppnislýsingu og tímaáætlun eru aðgengileg áhugasömum til kynningar. Endanleg samkeppnisgögn verða birt við formlega opnun samkeppninnar.

4. Þóknun til þátttakenda

Hver þátttakandi sem:

  • tekur þátt í síðari fasa samkeppninnar,
  • skilar gildri tillögu,
  • og uppfyllir allar kröfur samkeppnislýsingarinnar,

fær greidda fasta þóknun að fjárhæð 2.000.000 kr.

Þóknunin er því greidd fyrir gilda tillögu í síðari fasa samkeppninnar, en ekki fyrir staðfestingu á áhuga eða þátttöku í forvalinu.

5. Framhald verkefnisins

Gerður verður samningur við sigurvegara samkeppninnar um að vinningstillagan verði notuð sem grunnur að áframhaldandi hönnun verkefnisins.


Fyrir frekari upplýsingar má senda tölvupóst á trúnaðarmann samkeppninnar, Björgu Torfadóttur, framkvæmdastjóra AÍ á netfangið trunadarmadur@ai.is

Samkeppnislýsing (uppfærð 6.7.2026)

Norðurslóð Competition Brief (Updated 6.7.2026)

Samkeppnislýsing (uppfærð 6.7.2026)

Tímalína verkefnis

Norðurslóð - Time Schedule Competition

Tímalína verkefnis
Dagsetning
13. júlí 2026

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Arkitektúr
  • Architecture

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Kristínargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2026.

Sími 771 2200