Samverkun Borgarlínu og arkitektúrs - sýning 4. árs nema í arkitektúr

Stúdíó 4. MArch. nema í LHÍ -Samverkun
29. apríl 2026 kl. 17:00 í Tjarnarsal, Ráðhúss Reykjavíkur
Lokayfirferð hönnunarverkefnis 4. árs nema við Arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands fer fram í Tjarnarsal Ráðhússins þann 29. apríl, frá kl. 9:00.
Sýningaropnum verður kl. 17:00 að lokinni kynningu og umræðum. Sýningin stendur til 30. apríl.
Í námskeiðinu Samverkun/Interaction, unnu nemendur með ólíka mælikvarða, frá landfræðilegum til staðbundins skala og skoða hvernig nýir innviðir hafa áhrif á hið byggða umhverfi. Með þróun Borgarlínu sem lykilhvata í umbreytingu höfuðborgarsvæðisins er rannsakað hvernig byggingarlist og skipulag geta tengst umhverfisvænum almenningssamgöngukerfum með því að samþætta arkitektóníska íhlutun, félagslega virkni og vistkerfið á tilteknum stöðum.
Í verkefnum sínum vinna nemendur með umhverfishönnun og arkitektúr í nánum tengslum við nýja samgönguinnviði með það að markmiði að auðga og efla staðbundna eiginleika og gæði við tilteknar stoppistöðvar borgarlínu.
Vonumst til að sem flestir hafi möguleika á að hlusta á kynningu nemenda og/eða njóta sýningarinnar sem stendur til fimmtudags 30.apríl, kl. 18:00.