Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
  • Fréttir

    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
  • Verkefni

    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
  • Íslensk hönnun og arkitektúr

    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
  • Fyrir hönnuði

    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
  • Fagfélög

    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
  • Miðstöð hönnunar og arkitektúrs

    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Sjáumst á eftir | Málþing – Hönnunarverðlaun Íslands 2019 – Útgáfugleði HA10

14. nóvember 2019

Hönnunarmiðstöð Íslands í samstarfi við Listaháskóla Íslands og Hönnunarsafn Íslands með stuðningi frá Landsvirkjun og Samtökum Iðnaðarins standa fyrir Hönnunarverðlaunum Íslands í kvöld kl. 18 í Iðnó.


Greipur Gíslason er kynnir kvöldsins og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra sér um að afhenda verðlaunin en veitt verða þrenn verðlaun, Hönnunar ársins - viðurkenning fyrir bestu fjárfestingu í hönnun og Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands.


Hér er viðburðurinn á Facebook.


Klukkan 15 í dag í Iðnó hefst svo málþing í tengslum við Hönnunarverðlaunin. Yfirskrift málþingsins er HANNAÐ Í HRING. Haldin verða snörp myndræn erindi um hönnun sem tæki til að þróa nýjar leiðir og sjálfbærar lausnir. 

Fjallað verður um sjálfbærar byggingar, matarhönnun, hönnun velferðarkerfis, hönnun sjálfbærra efna og hvernig hægt er að skilja og einfalda flókin kerfi með hönnun.  Að erindunum loknum verða skarpar pallborðsumræður um hlutverk hönnunar með heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun að leiðarljósi.
Meðal þeirra sem halda erindi eru Halldór Eiríksson arkitekt/Tark, Guðberg Björnsson hönnunarstjóri og stofnandi Lauf, Edda Jónsdóttir frá Stafrænni Reykjavík, Katrín María Káradóttir fatahönnuður og fagstjóri námsbrautar í fatahönnun hjá Listaháskóla Íslands, Kristín María Sigþórsdóttir, vöruhönnuður og Nils Wiberg frá Gagarín.

Í panel sitja meðal annarra Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Anna María Bogadóttir arkitekt og lektor í arkitektúr í Listaháskóla Íslands, Andri Snær Magnason rithöfundur og Magnús Þór Torfason, lektor í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum hjá Háskóla Íslands. 
Stjórnandi málþingsins er fjölmiðlakonan Fanney Birna Jónsdóttir.

Hér er viðburðurin á Facebook.

Að verðlaunaafhendingu lokinni heldur gleðin áfram í útgáfuhófi HA en 10. tölublað tímaritsins kemur út sama kvöld og inniheldur meðal annars ítarlega umfjöllun um Hönnunarverðlaunin og viðtöl við vinningshafa þeirra.


Hér er viðburðurinn á Facebook.

Sjáumst!

Tengt efni

  • Framúrskarandi hönnun fagnað

  • Vel heppnað málþing Hönnunarmiðstöðvar

  • Hönnunarverðlaun Íslands 2019, ráðherra veitir sigurvegurunum verðlaun

    Genki Instruments hlýtur Hönnunarverðlaun Íslands 2019

Dagsetning
14. nóvember 2019

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Hönnunarverðlaun
  • Málþing
  • Greinar

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200

Þessi vefur notar vafrakökur (e. cookies) til að tryggja sem besta upplifun af notkun vefsins. Lesa meira um vafrakökur.