Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Skapalón - Fatahönnun

6. september 2022

Skapalón eru sjónvarpsþættir um hönnun og arkitektúr úr smiðju 101 Productions. Þáttastjórnandi er Logi Pedro, tónlistarmaður og nemi í vöruhönnun við LHÍ. Í þessum fyrsta þætti er sjónum beint að fatahönnun. Viðmælendur eru fatahönnuðirnir Linda Björg Árnadóttir, Arnar Már Jónsson og Gunnar Hilmarsson. 

Þættirnir eru frumlegir og ferskir og gefa áhorfendum áhugaverða og skemmtilega sýn inn í störf hönnuða og hvernig hönnun og arkitektúr hefur áhrif á allt okkar líf. Nám í hönnun og arkitektúr nýtur vaxandi vinsælda meðal ungs fólks og mikilvægt að þættirnir veiti góða innsýn inn í stöðu hönnunar hér á landi, og nýtist nemendum og kennurum, sem innblástur, námsefni og heimild.

„Auðvitað er verið að útskrifa um tólf fatahönnuði á ári og það eru ekkert endalaust störf fyrir þá alla en þeir verða þá bara að fara í nýsköpun og búa til eitthvað nýtt. Það eru tækifæri núna, það eru breytingar núna. Fólk er að hverfa frá þessari hraðtísku og vill frá meira sérstakt. Fólk vill ekki fara og ferðast um heiminn og að það séu sömu búðirnar alls staðar, það vill finna hið sértæka. Ég held að það séu bara ný tækifæri," segir Linda Björg meðal annars í þáttunum. 

Horfðu á þáttinn hér

–

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og List fyrir alla hlutu styrk úr Barnamenningarsjóði og fengu RÚV og 101 Production til liðs við sig við framleiðslu þáttanna Skapalóns.

Þeim er ætlað að höfða til ungmenna þar sem ljósi er varpað á greinar hönnunar og arkitektúrs með aðgengilegum og áhugaverðum hætti. Þættirnir eru fjórir talsins og voru sýndir á RÚV á þriðjudagskvöldum í maí 2022.
Miðstöðin var til ráðgjafar um innihald þáttana.

Logi Pedro
Gunnar Hilmarsson
Linda Björg Árnadóttir
Arnar Már Jónsson

Tengt efni

  • Skapalón - Arkitektúr

  • Skapalón - Grafísk hönnun

  • Skapalón - Vöruhönnun

Dagsetning
6. september 2022
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Skapalón

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200