Skapandi sunnudagur fyrir alla fjölskylduna á lokadegi HönnunarMars!

Síðasti dagur HönnunarMars er runninn upp og enn er nóg framundan fyrir alla fjölskylduna. Sunnudagurinn einkennist af skapandi stemningu, leikgleði og upplifunum fyrir gesti á öllum aldri.
Á lokadeginum er fjölbreytt og fjölskylduvæn dagskrá víðsvegar um borgina þar sem hönnun, leikur og sköpun fá að njóta sín. Í Elliðaárstöð verður meðal annars boðið upp á glæsilega fjölskyldudagskrá, barnasmiðjur og upplifanir fyrir alla aldurshópa.
Um alla Reykjavík standa einnig yfir sýningar, opin hús, leiðsagnir og viðburðir þar sem gestir geta skoðað íslenska hönnun, hitt hönnuði og myndað nýjar tengingar áður en hátíðinni lýkur í ár.
Nú er síðasta tækifærið til að njóta alls þess sem HönnunarMars hefur upp á að bjóða.

10:00 - 16:00 Leiðsögn um arkitektúr - Heimsókn í fyrsta hamphús Íslands - Architecture Walk - Inside Iceland's first hemp house
Kiðjaberg 31, 805 Selfoss
12:00 - 15:00 Samhjól með Lauf Cycles / Bicycle Ride With Lauf Cycles
Elliðaárstöð, Rafstöðvarveg 6-14, 110 Reykjavík
12:00 - 17:00 Extinction Event / Extinction Event
Norræna húsið, Sæmundargata 11, 102 Reykjavík
13:00 - 15:00 Vorið vaknar í Elliðaárstöð / Spring Awakens at Elliðaárstöð
Elliðaárstöð - Rafstöðvarvegur 6-14
13:00 - 15:00 Ilmur - fjölskylduratleikur með Fischersund / Scent - A Sensory Scavenger Hunt with Fischer Sund
Elliðaárstöð, Rafstöðvarveg 6-14, 110 Reykjavík
13:30 - 14:30 Leiðsögn með Tertu um Elliðaárstöð / A Guided Tour With Terta
Elliðaárstöð, Rafstöðvarveg 6-14, 110 Reykjavík
14:00 - 15:00 Jarðflæði / Jarðflæði
Sweet Salone, Mýrargata 41, 101 Reykjavík
15:00 - 16:00 BRÚÐARBÚNINGURINN / THE BRIDAL COSTUME
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgata 41, 102 Reykjavík
15:00 - 16:00 Í samsæti hlutanna / In the Company of Objects
Grafíksalurinn, Tryggvagata 17, 101 Reykjavík
16:00 - 17:00 Ofið landslag / Woven Landscape
Kirsuberjatré, Vesturgata 4, 101 Reykjavík
18:30 - 22:00 Sarpur Minninganna: þegar þau vorum við / Archive of Them
Gróðurhúsið, Lækjartorgi
20:00 - 21:00 CATWALK / CATSWEAT / CATWALK / CATSWEAT
WorldClass Laugar, Sundlaugavegur 30a, 105 Reykjavík



