Skrifborð til leigu með frábæru útsýni

Stúdíó 17 – hönnunarstofa býður til leigu skrifborð í opnu rými og skrifstofum með glæsilegu útsýni á 2. hæð í endurgerðu skrifstofuhúsnæði að Stórhöfða 17 við Gullinbrú í Reykjavík – frábært útsýni til Esjunnar yfir Grafarvog og Grafarholt.
Öll helsta þjónusta innifalin eins og nettenging, fundarherbergi, setustofa, kaffistofa og eldhús, þrif o.s.frv.
Gott aðgengi og næg bílastæði. Stutt í stofnleiðir.
Stúdíó 17 er hönnunarstofa sem samanstendur m.a. af arkitektum og raflagnahönnuðum ofl.
Hægt er að velja um stakt skrifborð eða fleiri í opnu rými. Einnig er boðið upp á lokaðar skrifstofur.
Innifalið í leiguverði er:
- Nettenging
- Rafmagnskrifborð
- Eldhús / kaffistofa
- Kaffi
- Fundarherbergi
- Setustofa
- Þrif
Í húsinu eru ýmis fyrirtæki, þ.á.m. veitingastaður, líkamsræktir, tannlæknar, dýralæknar o.fl.
www.nings.is
www.skvass.is
www.metabolicreykjavik.is
Stutt er í flóru veitingastaða, bakaría og verslana í grenndinni ásamt annarri þjónustu. Einnig er stutt á nokkra golfvelli.
Þeir sem vilja hafa samband eða skoða húsnæðið sendi fyrirspurnir á: gunnarpall@ryma.is , eða í síma 698-5665.
svanbjorn@teslaehf.is eða í síma 698-2624.










