STOFNFUNDUR TEIKNAÐ AF KONUM – arkíf

STOFNFUNDUR TEIKNAÐ AF KONUM – arkíf
Fimmtudaginn 26. nóvember kl. 17 verður haldinn formlegur stofnfundur TEIKNAÐ AF KONUM - arkíf að Óðinsgötu 7.
Allir arkitektar eru velkomnir og sér í lagi til að gerast stofnfélagar. Safnið er lifandi arkíva og gagnasafn sem hýsir verk og sögu íslenskra kvenna í arkitektúr og skipulagi.
Undanfarið hefur áherslan verið að safna gögnum um fyrstu 28 íslensku konurnar sem námu arktiektúr og á sama stað er sýning, verk í vinnslu úr gagnaöfluninni.
Fyrir þau sem óska að gerast stofnfélagar án mætingar er tekið á móti skráningum á info@teiknadafkonum.is.