Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Stóllinn Skata fagnar 60 ára afmæli á þessu ári

26. júní 2019
Stóllinn Skata eftir Halldór Hjálmarsson, húsgagna- og innanhússarkitekt fagnar 60 ára afmæli á þessu ári.

Stóllinn Skata eftir Halldór Hjálmarsson, húsgagna- og innanhússarkitekt fagnar 60 ára afmæli á þessu ári. Að því tilefni verða framleidd tölusett eintök af völdum útgáfum.

Stóllinn Skata er fyrsti formbeygði stóllinn framleiddur á Íslandi og í raun elsti stóllinn sem framleiddur er hér á landi. Hönnuður Skötunnar er Halldór Hjálmarsson, húsgagna- og innanhússarkitekt (1927-2010), sem hannaði til dæmis kaffihúsið Mokka. Hann hafði þá nýlokið námi sínu í Kaupmannahöfn og hrifist meðal annars mjög af Maurnum eftir Arne Jacobsen, og vildi þróa sambærilegan íslenskan stól úr formbeygðum krossvið, sem þá var tiltölulega ný aðferð og algerlega óþekkt hér á landi.

Skötustóllin náði fljótt töluverðri útbreyðslu, enda alhliða stóll, sem bæði hentaði í stofnanir og heimili.  Stuttu seinna bættist stóllinn Þórshamar við, einnig úr formbeygðum krossvið, en með stærra baki. Framleiðslan lagðist síðan af 1973, en hófst að nýju 2008, og eru báðir stólarnir nú fáanlegir í ýmsum úfærslum og litum.

Þó dönsku árhrifin séu mjög sterk, og ekki síst frá stólum Arne Jacobsen, þá stendur Skötustóllinn sterkum fótum sem sjálfstæð íslensk hönnun, þar sem blandað er saman nýstárlegum tæknilausnum og ljóðrænum tilvísunum til  náttúrunnar. Festingarnar voru algjör nýjung og minntu auk þess á egg skötufisksins. Sama má segja um hið skötulagaða bak, sem fyrst og fram var hugsað til þess að ná fram sveigjanleika og hámarsstyrk, án þess þó að þyngja stólinn, en fyrstu stólar Arne Jacobsen áttu það til að brotna um hálsinn, þó síðar hafi verið bætt úr því með nýrri tækni.

Skötustóllinn fagnar 60 ára á þessu ári og framleidd verða tölusett eintök af völdum útgáfum. Bæði þeim nýjustu og einnig í sígildri glærri eik. Nánari upplýsingar fást á www.skata.is eða hægt er að senda fyrirspurnir á info@skata.is.

Heimasíða Skata

Tengt efni

  • hönnun -ar kvk, það að hanna

  • Stikla - Kimi

  • Hönnunarhugsun nýtist meðal annars til að eiga samtal, valdefla og takast á við óvissu

Dagsetning
26. júní 2019

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Húsgögn
  • Vöruhönnun

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200