Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Studio Granda hlýtur Hönnunarverðlaun Íslands 2020 fyrir verkefnið Dranga

29. janúar 2021

Hönnunarverðlaun Íslands 2020 voru afhent með rafrænum hætti í dag, 29. janúar. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra afhenti arkitektunum Margréti Harðardóttir og Steve Christer frá Studio Granda Hönnunarverðlaun Íslands 2020 fyrir verkefnið Drangar. 

Rökstuðningur dómnefndar:
Drangar er metnaðarfullt hönnunarverkefni arkitektastofunnar Studio Granda og afar vel heppnuð birtingarmynd aðkallandi viðfangsefnis arkitekta i nútímasamhengi, endurhugsun og endurnýting gamalla bygginga. Hér er sérstaklega vel útfærð breyting á gömlu sveitabýli og útihúsum í gistihús fyrir ferðamenn. Veðraðar byggingarnar fá að njóta sín og halda útlitslegu yfirbragði með sterkri vísun í sögu og samhengi, en um leið er heildarmynd staðarins styrkt og efld. Dæmi um það er samspil útveggja gistihússins þar sem gömlu veggirnir standa hráir og opnir, án glugga og hurða og mynda áhrifaríkt samspil skugga og takts við nýja veggi. Innra rýmið markast af hlýlegri eik og litum dregið saman milli bygginga og rýma með hlýrri notkun timburs og lita. Mismunandi litatónar og áferð lita eru vísun í fyrri virkni býlisins, t.d. í lit nautgripa eða gljástig vinnuvéla. Öll efnisútfærsla er sérlega vönduð og tengir rýmin saman í umlykjandi ramma um lífið innan byggingarinnar. Verkið er mikilvægt fordæmi og viðmið í ljósi vaxandi fjölda bygginga, ekki síst á landsbyggðinni, sem kalla á endurskilgreiningu og endurbyggingu vegna aldurs og annars konar nýtingar. 

Drangar er nýtt gistiheimili byggt á gömlum grunni, staðsett á Snæfellsnesi. Hannað af arkitektastofunni Studio Granda sem var stofnuð af þeim Margréti Harðardóttur og Steve Christer árið 1987.

–

Leikstjórn og framleiðsla: Blóð Stúdíó

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra afhendir arkitektunum Margréti Harðardóttir og Steve Christer frá Studio Granda Hönnunarverðlaun Íslands 2020 fyrir verkefnið Drangar.

Hönnunarverðlaun Íslands voru veitt í fyrsta sinn árið 2014 og varpa ljósi á mikilvægi og gæðum íslenskrar hönnunar og arkitektúrs, enda er vægi hönnunar í menningu, samfélagi og viðskiptalífi alltaf að aukast. Verðlaunin beina sjónum að því besta sem gert er á sviði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi um leið og einstaka hönnuðum eða hópum hönnuða er veitt mikilvæg viðurkenning.

Í dómnefnd Hönnunarverðlaun Íslands 2020 sátu:
Sigríður Sigurjónsdóttir formaður, Hönnunarsafn íslands           
Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, LHÍ                                                      
Sigrún Unnarsdóttir, fatahönnuður MH&A                                                            
Þorleifur Gíslason, grafískur hönnuður MH&A                                          
Paul Bennett, hönnunarstjóri IDEO, MH&A                                               
Margrét Kristín Sigurðardóttir, SI                                                               
Hörður Lárusson, grafískur hönnuður MH&A                                           
Sigrún Birgisdóttir, arkitekt, LHÍ      

Það er Miðstöð hönnunar og arkitektúrs sem stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands, Listaháskóla Íslands, Landsvirkjun, Íslandsstofu og Samtök iðnaðarins.

Tengt efni

  • Hönnunarverðlaun Íslands
  • Drangar eftir Studio Granda tilnefnt til Hönnunarverðlauna Íslands 2020

  • 66°Norður hlýtur viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun á Hönnunarverðlaunum Íslands 2020

  • Heiðursverðlaunahafi Hönnunarverðlauna Íslands 2020 er Kristín Þorkelsdóttir, grafískur hönnuður

Dagsetning
29. janúar 2021
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir
Ljósmyndari
Aldís Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Hönnunarverðlaun Íslands 2020
  • Fagfélög

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200