Sýning Katrínar Maríu Káradóttur Eftir á að hyggja opnar á Akranesi

Sýningin Eftir á að hyggja eftir Katrínu Maríu Káradóttur, prófessor í fatahönnun við Listaháskóla Íslands, opnar í Beitunni á Akranesi laugardaginn 3. október. Þar lítur Katrín um öxl og dregur fram afrakstur rannsókna sinna á sjávarleðri, um leið og hún leitar nýrra leiða til framtíðar.
Sýningin á rætur að rekja til þátttöku Katrínar í alþjóðlega rannsóknarverkefninu FISHSkin - Developing Fish Skin as a Sustainable Raw Material for the Fashion Industry, sem styrkt var af rannsóknaráætlun Evrópusambandsins, Horizon 2020. Verkefnið fjallaði um þróun sjávarleðurs sem umhverfisvæns valkostar fyrir tískuiðnað.
Í tengslum við rannsóknina vann Katrín fjölmargar tilraunir með sjávarleður. Hún rannsakaði meðal annars sútun fiskroðs, litaði það með náttúrulegum litarefnum, meðhöndlaði með náttúrulegum olíum, saumaði í efnið og blandaði því saman við annan textíl. Vinnan byggði jafnframt á rannsóknum hennar á menningararfi og handverkshefðum tengdum nýtingu fiskroðs á norðurslóðum.
Í Eftir á að hyggja eru þessar rannsóknir og tilraunir teknar áfram og settar í samtímalegt samhengi. Sýningin er í senn uppgjör við rannsóknarferlið og leit að því hvert hægt sé að halda næst. Á sýningunni eru prufur og flíkur unnar úr jurtalituðu sjávarleðri ásamt innsýn í rannsóknar- og hönnunarferlið að baki þeim.
Rannsóknin heldur áfram eftir að sýningunni lýkur. Katrín hyggst meðal annars klæðast flíkum sem litaðar hafa verið með náttúrulegum litarefnum og skrásetja hvernig þær eldast og breytast með tímanum. Þannig verður tíminn sjálfur hluti af rannsókninni og flíkurnar gætu síðar orðið rannsóknargripir á nýrri sýningu.
Opnun á Akranesi
Eftir á að hyggja opnar laugardaginn 3. október kl. 15:00 í Beitunni, Breiðargötu 2b á Akranesi.
Sýningin stendur yfir dagana 3.–11. október og er opin daglega kl. 14–17.
Sýningarstjóri er Sigmundur Páll Freysteinsson.
Sýningin er unnin í samstarfi við Breið nýsköpunarsetur, Nordic Fish Leather og Listaháskóla Íslands.
Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, nýdoktor við Heimspekistofnun Háskóla Íslands og lektor við Listaháskóla Íslands, heimsótti Katrínu á vinnustofu hennar á dögunum en hún hefur lengi þekkt til verkefnisins. Katrín bað hana að skrifa texta um sýninguna sem fær að fylgja hér með:
„Fær sjávarleður í fangið. Hvað á að gera við þetta? Hmmm... leyfir því að fljóta og byrjar að elta það. Eltir það ofan í hafið, finnur þarann, hittir fiskana, finnur samfélag kvenna í hafinu til að synda með í gegnum lífið. Lærir að elska hafið. Eltir sjávarleðrið svo inn í fortíðina og hittir þar handverksfólk víða að úr heiminum. Eltir það til Japan og hittir þar annað samfélag kvenna sem stinga sér ofan í hafið, kunna að anda eins og fiskar, sækja þar fjársjóði. Lærir að fríkafa, verða frjáls í hafinu og lífinu. Lærir að dvelja í natni, taka tíma, leyfa náttúrulegum ferlum að ráða ferðinni. Sér hvað gerist þegar sjórinn mætir skóginum, jörðinni, himninum. Smátt og smátt sest hafið að í líkamanum. Lærir að skynja meira og hlusta betur á hafið í líkamanum, náttúruna í sjálfinu, í ferlinu. Hafið, handverkið, sagan, ferlið allt frá því Katrín María fékk sjávarleðrið í hendurnar, sjáum við líkamnast í verkum hennar. Við finnum fyrir hafinu, fyrir samfélögum kvenna sem synda sterkar saman í straumnum, frjálsar, í friði með fjársjóðunum sem þær sækja í náttúruna. Við finnum styrk þeirra, heyrum þær rabba saman yfir handverkinu, heyrum í hafinu, heyrum hljóðin í hafinu taka á móti þeim þegar þær stinga sér til sunds, finnum lyktina af þaranum, finnum hreyfingar fiskanna synda í straumnum.“