Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Sýningin skart:gripur - skúlptúr fyrir líkamann opnar í Hafnarborg

3. apríl 2024

Á sýningunni skart:gripur - skúlptúr fyrir líkamann má finna gripi eftir fjölbreyttan hóp gullsmiða, skartgripahönnuði og listamanna sem varpa ljósi á skartið í samtíma okkar. Sýningin opnar laugardaginn 6. apríl kl. 15 í Sverrissal í Hafnaborg og er hluti af dagskrá HönnunarMars.

Gripirnir eru eftir fjölbreyttan hóp þar sem ólík efnisnotkun, mismunandi aðferðir og handverk endurspeglast í verkum hvers og eins. Markmiðið er sýna hve margbreytilegir skartgripir eru. Þeir eiga djúpar rætur meðal allra þjóða heims, hafa raunar fylgt mannkyninu frá upphafi.

Þátttakendur eru Anna María Pitt, Arna Gná, Ágústa Arnardóttir, James Merry, Hildur Ýr Jónsdóttir, Helga Mogensen, Katla Karlsdóttir, Orr og Marta Staworowska. Sýningarstjóri er Brynhildur Pálsdóttir, hönnuður.

„Við höfum alltaf haft þessa djúpstæðu þörf á að skreyta okkur og notað skartgripi sem eins konar tungumál, efnisleg tákn sem senda skilaboð út á við. Efniviður gripanna á sýningunni er allt frá klassískum eðalmálmum yfir í ónýta símaskjái. Allt eru þetta þó skartgripir, skúlptúrar fyrir líkama. Það hefur verið afar athyglisvert að taka saman verk eftir þessa ólíku hönnuði og listamenn og varpa ljósi á skartgripi samtímans.“

Skart hefur fylgt mannkyninu frá örófi alda. Þörfin til að skreyta líkama og klæði með skarti er frumstæð og hefur djúpar rætur í menningarsögu allra þjóða. Skartgripir gegna stöðu tungumáls í menningu okkar og samfélagi. Þeir eru frásögn, tákna stöðu, miðla persónuleika og senda skilaboð. Þá endurspeglar sýningin margbreytileika í efnistökum, aðferðum og nálgun í skartgripagerð hér á landi.

Sýningin opnar laugardaginn 6.apríl og stendur til 26. maí.

Á HönnunarMars dagana 24. - 28. apríl verða viðburðir og leiðsagnir á sýningunni.

skart:gripur

Hvað, hvar, hvenær? Lestu meira um sýninguna á HönnunarMars.is

Ýttu hér
Viðburður á Facebook

Tengt efni

  • Robert Thiemann og Hrund Gunnsteinsdóttir á DesignTalks 2024

  • Taktu þátt í DesignMatch kaupstefnunni á HönnunarMars 2024

  • Lisa Lapauw og Mous Lamrabat á DesignTalks 2024

Dagsetning
3. apríl 2024
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • HönnunarMars
  • Fagfélög

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200