Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Sýnir á Feneyjatvíæringnum á Ítalíu

22. júní 2021

Arkitektinn og myndlistarmaðurinn Guðjón Bjarnason opnaði í senn arkitektúrsýningu á Feneyjartvíæringnum, Ítalíu og myndlistarsýningu í sendiráðsbústaðnum í Genf, Sviss í vor.

Annars vegar er um að ræða framlag Guðjóns til til Feneyjartvíæringsins í Feneyjum. Sú sýning opnaði þann 22. maí  og stendur fram til 21. nóvember. Guðjón var valinn til þáttöku á sýningunni sem ber heitið CITYX 2021 en þar sýnir hann valið úrval arkitektaverefna sem hann hefur unnið á list og hönnunarstofu sinni GB-AAA (Gudjon Bjarnason Art & Architecture Ateliers) s.l. áratug.

Tvíæringurinn ber í heild yfirskriftina „How will we live together“ . Sýningarstjórar hans eru Hashim Sarkis auk þeirra Tom Kovac og Alessandro Melis sem völdu saman nokkra arkitekta víða að til leiks í ítalska skálanum (Italian Pavillion) í Arsenale hluta Tvíæringsins. Nefnist sá hluti sýningarinnar CITYX 2021 og er verk Guðjóns að finna þar á meðal. 

Framlag Guðjóns byggist á sex mínútna videóverki „How-Coexsistence.....“ og byggist á hægflæðandi samansafni ímynda af arkitektúr og skúlptúrverkum hans. Sérstök áherzla er lögð á Tónlistarhúsið í Shillong, Meghalya á  Norður-Indlandi sem Guðjón/GB-AAA hannaði. Það útsprengda margarma mannvirki sem hefur listræna tilvísun í fyrri stálsprengiverk Guðjóns sem hann vann í landssamkeppni og var hornsteinn tekinn haustið 2015 og er nú í uppbyggingu.  Einnig eru sýndar skipulagshugmyndir GB-AAA að endurbættu skipulagi Patto, viðskiptahluta Panjim, höfuðborgar Góa ríkis, gerð góð skil. Þar að auki eru til sýnis nokkur önnur verk af ólíkum toga en svipuðum formyndunum og hugsun  í USA, Kína og Íslandi.

Tónlistin í myndbandinu er frumsamin af Eðvarði Egilssyni en að gerð sýningarinnar kom einnig Jón Kári Hilmarsson sem og fjöldi samverkafólks Guðjóns á Indlandi. Myndbandið verður til sýnis í sendiráðsbústaðnum í Genf.

Einnig opnaði sýningin IslANDs undir sýningarstjórn Ásthildar Jónsdóttur í sendiráðsbústaðnum. Um er að ræða 13 myndverk af negatívum ljósmyndum prentuðum á ál með yfirþrykktum svörtum afstæðum myndgerðum í snöggri upplausn um miðju verka. Sýningunni fylgir einnig nýtt 6 mínútna myndbandsverk „EcsATic BeINg cONstant Flux“ sem sýnir kaldlitar ímyndir landslags í stöðugri umbreytingu. 

Myndbandið og ljósmyndirnar eru af hnignandi jöklum, fossum og  eyðilöndum spilltum af mannahöndum og eru valinn af sýningarstjóra til  áréttingar um gegndarlausa eyðingu náttúrunnar og loftlagsvá veraldar eins og fram kemur í texta sýningarskrár. Sýningin IslANDs stendur fram eftir sumri.

Guðjón Bjarnason - heimasíða
Feneyjartvíæringurinn - 2021

Tengt efni

  • Taktu þátt í að móta framtíð hönnunar og arkitektúrs á Íslandi

  • Umhverfisstofnun óskar eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar 2021

  • HönnunarMars í Osló

Dagsetning
22. júní 2021
Höfundur
Álfrún Pálsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • Greinar
  • Arkitektúr

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200