Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
    • Nýjast
    • Greinar
    • HönnunarMars
    • Viðtöl
    • Aðsent
    • Hönnunarmars
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Hönnunarsjóður
    • Útlínur framtíðar - Hönnunarstefna 2030
    • Samkeppnir&Valferli
    • Skapalón
    • Góðar leiðir
    • HA – tímarit um íslenska hönnun og arkitektúr
    • Ertu að leita að hönnuði og arkitekt?
    • Verslanir sem selja íslenska hönnun
    • LHÍ hönnun og arkitektúrdeild
    • Hönnunarsafn Íslands
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Hönnunarsjóður
    • Hönnunarverðlaun Íslands
    • Styrkir
    • Samningar
    • Hönnunarnám
    • Ráðstefnur og sýningar
    • Félög hönnuða og arkitekta
    • Arkitektafélag Íslands
    • Félag íslenskra landslagsarkitekta
    • Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
    • Félag íslenskra teiknara
    • Fatahönnunarfélag Íslands
    • Félag vöru-og iðnhönnuða
    • Félag íslenskra gullsmiða
    • Leirlistafélag Íslands
    • Textílfélagið
    • Starfsemi og hlutverk
    • Starfsfólk
    • Stjórnir
    • Hafa samband
    • Útgefið efni
  • hönnunarverðlaun Íslands
    • English
    • Íslenska

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
hönnunarverðlaun Íslands
Aftur í HA/fréttir
    • English
    • Íslenska

Taktu þátt í DesignMatch kaupstefnunni á HönnunarMars 2025

11. febrúar 2025

Á DesignMatch fá hönnuðir tækifæri til að kynna sig (sem hönnuði) og verkin sín fyrir erlendum kaupendum. Að þessu sinni er nýjung á DesignMatch, en nú hafa fatahönnuðir tækifæri á því að taka þátt í kaupstefnunni.

Hvenær: Föstudaginn 4. apríl frá kl. 09 - 13
Hvar: Landsbankinn, Reykjastræti 6, 101 Reykjavík

Fyrirkomulagið er þannig að hönnuðir senda inn max 5 síðna pdf portfolio þar sem þeir kynna sig og sín verk ásamt því að setja inn almennar upplýsingar og vefsíður.

Umsóknarfrestur til miðnættis þriðjudaginn 4. mars.

Í ár munu eftirfarandi aðilar frá meðfylgjandi fyrirtækjum kynna sér íslenska hönnun með framtíðarsamstarf í huga:

Alice Bouleau frá STERLING INTERNATIONAL; Sterling International er alþjóðlegt ráðgjafafyrirtæki sem sérhæfir sig m.a. í ráðningum fyrir tískugeirann.

Julie Lykke Myhrvold frá MUUTO MUUTO

Poul Madsen frá NORMANN COPENHAGEN

Ragna Sara Jónsdóttir frá FÓLK Reykjavík

Kjartan Páll Eyjólfsson frá EPAL

Alice Bouleau, meðeigandi og stjórnandi "Creative Pole" hjá Sterling International
Poul Madsen, forstjóri Normann Copenhagen
Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi og listrænn stjórnandi FÓLK Reykjavík
Kjartan Páll Eyjólfsson, framkvæmdarstjóri Epal
Julie Lykke Myhrvold, yfirmaður hönnunardeildar hjá Muuto

Á DesignMatch mæta íslenskir hönnuðir erlendum kaupendum og framleiðendum á kaupstefnu. Það fer ekki alltaf hátt hvað kemur út úr DesignMatch enda tekur oft langan tíma að koma á samstarfi milli aðila. Í kjölfarið hafa nokkuð margir hönnuðir unnið með erlendum fyrirtækjum og íslenskar hönnunarvörur hafa í auknum mæli sést í vöruframboði norrænna hönnunarfyrirtækja.

Dæmi um vörur sem hafa farið í framleiðslu eða sölu eru:

  • Kertastjaki fyrir Ferm Living eftir Hönnu Dís Whitehead
  • Hring eftir hring hjá Wanted Design
  • Uggi Lights eftir Dögg Guðmundsdóttur fyrir Pop-Corn Catalogue
  • Skrifborð eftir Chuck Maack fyrir DesignHouse Stockholm
  • Twin Within hálsmen fyrir Monoqi
  • Almanak eftir Snæfríði og Hildigunni fyrir Wrong for Hay.
  • Stone Hooks eftir Helgu Sigurbjarnar fyrir Normann Copenhagen
  • Wool Hooks eftir Bryndísi Bolladóttur fyrir Normann Copenhagen
  • Wall bookmark eftir Vakna Design fyrir Design Torget

Verkefni sem komið hafa óbeint út frá DesignMatch er t.d. Shorebird eftir Sigurjón Pálsson fyrir Normann Copenhagen sem er önnur söluhæsta varan þeirra og Knotknot púði Ragnheiðar Aspar sem DesignHouse Stockholm kynnti með öðrum nýjungum árið 2017 og er ein af þeirra vinsælustu vörum. 

Það er gott að nýta tækifærið og viðburð eins og DesignMatch til að efla tengslanetið. Þau fyrirtæki sem taka þátt eru gagngert komin til að kynnast íslenskri hönnun og hönnuðum.

Vinsamlegast skilið max 5 síðna portfolio á pdf á netfangið info@honnunarmars.is - skilafrestur er til miðnættis þriðjudaginn 4. mars.

Sjáumst á HönnunarMars!

Uggi Lights eftir Dögg Guðmundsdóttur fyrir Pop-Corn Catalogue
Shorebird eftir Sigurjón Pálsson fyrir Normann Copehagen
Knotknot púði Ragnheiðar Aspar sem DesignHouse Stockholm kynnti árið 2017
Stone Hooks eftir Helgu Sigurbjarnar fyrir Normann Copenhagen

Tengt efni

  • Lina Ghotmeh á DesignTalks 2025

  • Hönnunarsamkeppni Samtakanna ‘78 um tákn fyrir kynhlutlaus rými

  • Hraunmyndanir / Lavaforming í Listasafni Reykjavíkur 2026

Dagsetning
11. febrúar 2025
Höfundur
Guðrún Edda Einarsdóttir

Deila

  • Facebook
  • Twitter
  • Pinterest

Tögg

  • DesignMarch
  • Greinar
  • Fatahönnun
  • Vöruhönnun

Miðstöð hönnunar og arkitektúrs
Gróska, Bjargargata 1
102 Reykjavik

info@honnunarmidstod.is

  • Facebook
  • Instagram
  • Vimeo
  • Pinterest
© Hönnunarmiðstöð 2025.

Sími 771 2200